Færsluflokkur: Trúmál og siðferði

Sá yðar sem syndlaus er,kasti fyrsta steininum. (Limrur.)

Úr glerhúsi grjóti menn kasta
þeir gróflega klæmast og lasta.
Já sumir þeir þvaðra
og setj´út á aðra,
nú segjum við barasta,BASTA!

Í réttlátri reiði,menn skamma
og rægja þá,sem voru að djamma.
Við finnum þá seka
og þá flesta skal REKA.
Hvort eruð þið betri? Spyr amma.....



 

 


Kominn tími til að fá betri forustu með baráttuvilja og réttlætiskennd.

Ég bendi fólki á blogg um einelti í Hafnarfirði, þar sem K.Í.BRÁST MÉR ALGERLEGA.        Ég bað ítrekað um aðstoð, þar sem stjórnsýslulög voru brotin á mér af Erlu Guðjónsdóttur,þá skólastjóra Öldutúnsskóla og Magnúsi Baldussyni fræðslustjóra.           Í starfslokasamningi við Hafnarfjarðarbæ var ákvæði um  "engin eftirmál" af deilum okkar,sem þau brutu með því að koma í veg fyrir að ég fengi vinnu sem tónmenntakennari í Hafnarfirði og nágrenni, árum saman, og nú síðast í sumar...(Sjá fleiri blogg.)           Það virðis almennt ENGIN virðing fyrir lögum og reglum hjá skólastjórum, né starfsmönnum K.Í.  Best að "þagga málin niður".....Það er ekki líklegt að svona LATT fólk með svona réttlætiskennd muni ná nokkrum árangri fyrir okkur kennara.Ég hef verið meira og minna atvinnulaus, sem tónmenntakennari í mörg ár, og svo komast skólastjórar UPP MEÐ að auglýsa störf, en HÆTTA við að ráða, ár eftir ár...                                   Gott í bili, en KJÓSUM BETRA FÓLK til að vinna fyrir okkur og REKUM lögfræðing K.Í.   Kári Friðriksson.


mbl.is Snýst fyrst og fremst um krónutöluna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Orti ljóð í gær,vegna 10 ára barns sem múslimar notuðu til hryðjuverka.

Orti um þetta ódæði....

"Hetjskapinn" marka má,
Múslima,á þessu
er þeir blessuð börnin smá
brúka, og sprengja í klessu.

Við í fréttum fáum séð
fleira,um þessa peyja.
Ef þú teiknar Múhameð
muntu í staðin deyja.

Sein til hefnda er siðuð þjóð,
samt er mál að linni.
Mun þá renna múslimskt blóð,
margir lokast inni.

Las um stórfellt stríð sem mun
standa á vorum dögum.
Spillingu og sprengjudun
spáð í fornum sögum.

Nostradamus varar við
voða á þessum tíma.
Ýmsir vilja eyða frið,
illt við slíkt að glíma.

Fleirum hjá en franskri þjóð,
(fornar bækur kenna)
munu þeirra,og múslimskt blóð,
meira fá að renna.....

Að við loksins fáum frið,
fornar bækur segja.
Ísland mun þar leggja lið,
ljúft er mér að segja....

Ég var einmitt að lesa spádómana um Ísland og fleira í bók, sem kom út
fyrir c.a. tuttugu árum. Miðað við þá spádóma, á nú eftir að ganga eitthvað á....
Ég ætlaði nú bara að yrkja eina vísu, út af 10 ára stelpunni, sem var plötuð (neydd) til að ganga með sprengju ....Þetta lengdist aðeins...
Þessu má deila....

 

Þetta setti ég á netið í gær, hef áður skrifað um "umskurn kvenna" sem víða viðgengst, jafnvel þrátt fyrir að hafa verið bannað. Ef þetta kemur fyrir almenningssjónir, þá vona ég að LÖG VERÐI SETT sem tryggja refsingu, ef einhverjum egipta t.d. skyldi detta í hug að fara með dóttur sína til Egiptalands og láta umskera hana þar....

Í ÞESSARI UMRÆÐU slá ýmsir sig til riddara með því að ráðast á Ásmund fyrir að hafa áhyggjur af stöðu mála. HEFUR sama fólk mótmælt meðferð á t.d. Hells Angels meðlimum,sem ekki geta ferðast til Íslands, "þeir eru örugglega glæpamenn"           EÐA þeirri mismunun að samkynhneigðir fá ekki að gefa blóð ? ? ?(Gæti nefnt fleiri hópa sem er mismunað, t.d. reykingafólk sem er alls staðar útskúfað....)
BÍÐUM BARA eftir fyrsta alvöru hryðjuverkinu hér á landi, ÞAÐ MUN KOMA .
Þá mun  "góða fólkið" umburðarlynda kannski sjá að það er eðlilegt að þjóðfélagshópur sem víða um heim stendur fyrir hryðjuverkum,(umfram aðra hópa)  sé undir meira eftirliti en aðrir...
Vonandi rætast EKKI þær slæmu spár, sem ég hef lesið um framtíðina, t.d. spár Nostradomusar, en það er ekki óvitlaust að gera áætlun um viðbrögð við hryðjuverkum og vera ekki eins og aular, þegar eitthvað gerist. Svíþjóð t.d. er eitthvert  "besta land í heimi" fyrir innflytjendur. SAMT búa þeir við hryðjuverkaógn.....
Að endingu, VERUM GÓÐ hvert við annað, (líka við sjálfstæðismenn, þótt þeir séu verr innrættir en aðrir af hugsjónaástæðum flestir...)
Kári Friðriksson.


mbl.is Spyr um rannsóknir á múslímum á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Peningar geta haft áhrif gegn UMSKURÐI KVENNA og BARNAÞRÆLKUN.

Ég setti blogg um daginn á vefinn og talaði fyrir viðskiptaþvingunum gegn þjóðum sem misbjóða konum,umskera þær t.d.  Ég vil heldur EKKI KAUPA VÖRUR sem framleiddar eru með barnaþrælkun. Mér finnst það uppgjöf og í raun viðurkenning á ástandinu eins og það er að "kaupa börn úr ánauð" Það á að mótmæla bæði umskurði á konum,sem er stórglæpur og einnig barnaþrælkun. Indverjar t.d. eru að senda upp geimför og eiga kjarnavopn. Svoleiðis stórþjóðir eiga ekki að láta barnaþrælkun líðast.   Ég kaupi stundum "fair trade" kaffi,þótt ég velji nú reyndar oftast íslenskt Braga kaffi,svartan Rúbín. Drekk íslenskan bjór o.f.l. til að styrkja íslenskan iðnað,uppáhaldið er Premium. Kaupi ALLS EKKI vörur frá Egyptalandi eftir að ég las í Mogganum að 97 % kvenna þar væru umskornar.  Kaupi ekki vörur frá Indlandi nema vera nokkuð viss um að ekki hafi verið farið illa með fólk . Ég sver að ég HEF ALDREI keypt McDonald´s hamborgara á Íslandi,frétti að eigendur hefðu reynt að svína á ungmennum og borga þeim MINNA en lágmarkskaup.Það var stöðvað af verkalýðsfélögum,en síðan versla ég ekki við drullusokka. Væri til í að standa með mótmælaspjald hjá fyrirtækjum sem þekkt eru af svínslegri framkomu við fólk. VERUM VIRK. Okkar viðskipti geta verið til góðs. Verslum ekki við þá sem kúga aðra.  Kári Friðriksson.


"Virtur" fræðimaður í Egyptalandi.(Frétt af mbl.is)

Ég verð að segja að ég vona að hérlendis séu svona menn ekki "virtir". Þetta minnir mig á frétt sem birtist í Morgunnblaðinu fyrir nokkrum árum um að 97% kvenna í Egyptalandi væru umskornar. Síðan þá hefur virðing mín fyrir þeirri þjóð lækkað mikið,enda er umkurður af því tagi glæpur í augum okkar vesturlandabúa.Ég veit dæmi um menn frá Egyptalandi sem búa á Íslandi og eru kvæntir íslenskri konu.Ég vil að sett séu (til öryggis) ströng lög gegn umskurði kvenna hér á landi til að minnka líkur á því að þessir menn skreppi til Egyptalands og láti umskera dætur sínar. Það kom fram í fréttinni að þeir væru nýlega búnir að banna umskurð kvenna í Egyptalandi en fólk færi bara ekki eftir því.  VIÐSKIPTABANN væri líka við hæfi á þjóðir sem koma svona fram við konur.Munum Suður Afríku.Ég hef fengið áskorun á netinu,gegn umskurði,það er gott að nota netið en peningar virka líka vel.Ég skora á íslenskar konur að vinna í þessu máli og styðja kynsystur sínar í Norður afríku og víðar  til dæmis í múslimalöndum. Kári Friðriksson.


mbl.is Vill dauðadóma fyrir falska meydóma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um bloggið

Kári Friðriksson

Höfundur

Kári Friðriksson
Kári Friðriksson
Tónlistarmaður,tenorsöngvari,trúbadúr,kórstjóri og tónmenntakennari.Yrkir ljóð,semur lög og stundar kraftlyftingar til að slaka á.Giftur og á þrjú börn.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband