Færsluflokkur: Tónlist

Áskorun á Sveppa,karifrid (Á youtube.) Textinn .

      Áskorun á Sveppa.Lag og ljóð Kári          Friðriksson.

Þú grínari mikli sem ekur um allt,       
sem útvarpar spaugi úr bílnum.
Ég læt þig nú vita að lánið er valt
og líklegar hefndir frá skrílnum.

Því fólk sem þú níðir í fýlu nú er,
þú ferð nokkuð oft yfir strikið.
Það óþverra grínsem þú gerðir,að mér
var gróft,og mér sárnaði mikið.

Ég frétti,þú lent hafir einelti í,
með útlit þit grínast og spikið.
Ég verð nú að segja,mér virðist af því
varla,þú lært hafir mikið.

Að grínast með feita og fatlaða er
sko "fyndni" af lakasta tagi.
Þitt lélega innræti alþjóð nú sér,
þú ert ekki Sveppi,í lagi.

Að ganga of langt,eiga grínarar til
en gáð´að mig skortir ei kraftinn.
Ég reiddist þér Sveppi og vegna þess vil
þér veglega gefa á kjaftinn.

Þú óþverrakjaftur sem áreittir mig
ég á þig í slag núna skora.
Í lokuðu búri ég lemja skal þig,
(en líklega munt´ekki þora.)

Klárað 22.1.2021. Kári Friðriksson.
Mannlíf.is fjallaði ágætlega um þetta og kom með dæmi um hvað þeir sögðu um mig á podkastinu. Einnig er texti neðan við myndbandið á youtube með þessum texta við lag eftir mig. 
Munið: "Engin skyldi skáldin styggja, skæð er þeirra hefnd."


Skólastjórarnir Lars Jóhann Imsland og Valdimar Víðisson með í einelti.



Ágætu lesendur.
Þessi skrif eru í tengslum við grein um einelti og brot á samningum og stjórnsýslulögum, sem ég setti á bloggið fyrir nokkru.
Skólastjórarnir Lars og Valdimar ganga í lið með þeim sem stunda einelti, þrátt fyrir að vita að til sé starfslokasamningur þar sem segir að "engin eftirmál skuli verða af þessu máli" sem var, kæra mín til stjórnenda Hafnarfjarðar vegna framkomu Erlu Guðjónsdóttur, og að þetta sé hefnd .
Munu þeir gera svipað ef einhver lendir í deilum við þá. Rægja þá árum saman og koma í veg fyrir að þeir/þær  fái vinnu...Finnst þeim það eðlilegt ?
Báðir hafa frekar ENGA TÓNMENNTAKENNSLU frekar en að ráða mig...
Eftir að upp komst um að fræðslustjóri , Magnús Baldursson,að tilhlutan Erlu hafi mælt gegn því að ég fengi vinnu í Hafnarfirði (og sennilega mun víðar,)"vegna samskipta"  segja nú skólastjórar að ég sé ekki ráðinn  " vegna viðhorfa til umhverfisins". 
Valdimar átti kannski erfitt, þar sem Erla starfaði áfram við kennslu eftir að hann tók við, (var sem sé partur af "umhverfinu"). Þetta sagði hann ekki hreint út, en ég skoðaði kennaralistann á netinu.                                                 Imsland hefði hins vegar ,hefði hann réttlætiskennd, getað ráðið mig, en er greinilega huglaus, og fer auðveldu leiðina, að ganga í lið með þeim sem standa fyrir eineltinu.
Hef alltaf unnið ýmis störf fyrir nám,einnig sem aukastörf, t.d. sem söngvari, skemmtikraftur og kórstjóri með kennslu. Hafði þá ágætar tekjur, og "aukastörfin" gefa til kynna að ég hafi einhverja hæfileika sem tónlistarmaður. Ekki hefur Erla nefnt eitt einasta atriði um það sem væri að hjá mér, sagt "að ýmislegt væri að"  en ekki er gott að andmæla svo óljósri gagnrýni...  Sannleikurinn er að hún er bara reið vegna kærunnar. HÚN ER AUÐVITAÐ VANHÆF til að fjalla af SANNGIRNI, um mig sem kennara. Þetta ættu nú allir að hafa í huga. MAGNÚS BALDURSSON átti auðvitað að STOPPA HANA en ekki hjálpa.Nú er hann búinn að eyðileggja orðstý sinn sem stjórnandi, brjótandi starfslokasamning og stjórnsýslulög. Erla hlýtur að hafa mjög góð tök á honum.....
Hef unnið ýmis störf eða verið atvinnulaus eftir að missa vinnu þegar kreppan skall á og mikill niðurskurður varð.MJÖG MIKIÐ TEKJUTAP.....
Já, ÉG KÆRÐI ERLU GUÐJÓNSDÓTTUR skólastjóra fyrir "yfirgang og hótanastjórnun" sem endaði með "sátt" um það að ég fékk laun í heilt ár, enda hafði Erla MJÖG SLÆMT ORÐ Á SÉR og FJÖLDI KENNARA hafði HÆTT í Öldutúnsskóla vegna framkomu og stjórnunarstíls hennar. Hún náði sér niðri á mér, með því að nota sambönd sín á Fræðsluskrifstofunni þar sem húnn vann áður, og einnig sem skólastjóri í skólastjórafélaginu. Einnig er hún framarlega í Sjálfstæðisflokknum og stjórnendur í Garðabæ og Kópavogi hafa brotið stjórnsýslulög til að verða að vilja hennar.(Nefni t.d. Kársnesskóla)
Hún skrifaði m.a. "minnisblað" þar sem hún heldur því fram að sálfræðingurinn Einar Ingi, sem var fenginn til að hjálpa mér til að bæta agastjórnun, AÐ MÍNU FRUMKVÆÐI, hafi reynt án árangurs að leiðbeina mér um ýmislegt annað, en ég EKKI BÆTT MIG NEITT! ÞETTA ER HAUGALYGI, og ótrúlega leggst manneskjan lágt til að hefna sín á mér fyrir að klaga hana... Einar Ingi ER EKKI kennaramenntaður, né með menntun í tónlist, hefur sem sagt ekki vit á hvernig tónmennt skal kennd,hins vegar hjálpaði hann mér með agamálin,og hafa þau gengið betur eftir að ég gerði eins og hann ráðlagði mér. Hann sagði að "mig skorti meiri herforingjabrag" og "yrði alltaf að standa við hótanir um að klaga í foreldra".
FRÆÐSLUSKRIFSTOFA hefur (vegna áhrifa ERLU) komið ítrekað í veg fyrir að ég fengi vinnu, en ég uppgötvaði það fyrst í fyrra, þegar ég sótti um í Víðistaðaskóla. Þar brýtur fræðslustjóri (og hanns fólk) samning sem gerður var um starfslok mín, þar sem segir að "engin eftirmál skuli af þessu máli"..... Ég hef sótt um, án árangurs vinnu í Hraunvallaskóla, Engidalsskóla/ Víðstaðaskóla. Hvaleyrarskóla og Áslandsskóla. Auk þess Flataskóla og Kársnesskóla, og þar var ég spurður út á ár mín í Öldutúnsskóla, (sem ég hafði ekki nefnt í umsókn) og mér virtist sem skólastjórar þar hefðu myndað sér fyrirfram neikvæða skoðun á mér sem kennara. (Skólastjórar á þeim svæðum hitta skólastjóra úr Hafnarfirði á fundum, og greinilegt að Erla hefur notað áhrif sín.)
Ég SKORA á þá sem þetta lesa að FARA eftir stjórnsýslulögum og útiloka ekki kennara, sem ALDREI hefur fengið áminningu á sínum rúmlega tuttugu ára ferli, og illa innrætt persóna hefur notað aðstöðu sína til að sverta. ÞEIR SEM ÞEKKJA TIL Í HAFNARFIRÐI VITA AÐ ERLA GUÐJÓNSDÓTTIR FÆLDI FJÖLDA MANNS ÚR ÖLDUTÚNSSKÓLA MEÐ FRAMKOMU SINNI.
Annars bendi ég á bloggið um "Einelti í Hafnarfirði,þar sem fjallað er um þetta talsvert betur...
Mér finnst leiðinlegt hvað sú grein fékk lítinn lestur. Kannski er lítill áhugi á einelti ?
Núverandi bæjarstjóri, Haraldur Líndal Haraldsson,sá ENGA ÁSTÆÐU til að gera neitt, þegar ég kvartaði yfir brotum á starfslokasamningnum . Annað, en Lúðvík Geirsson, sem var bæjarstjóri þegar samningurinn var gerður.
Brátt koma kosningar, og ég mun kannski vekja athygli á þessu enn frekar þá.
Vonandi lesa menn þetta, og hina greinina, þar sem aðkoma / aðkomuleysi K.Í. er tíundað.....Skrifa sjálfsagt meira um þetta seinna...
Virðingarfyllst, Kári Friðriksson.


Ljóðstafur Jóns úr Vör 2014. EKKERT LJÓÐ NÓGU GOTT fyrir verðlaun.

Sælir ljóðaunnendur. Ég set hér ljóð sem ég sendi í keppnina nú í ár. Þetta er reyndar við lag sem ég samdi, og sendi í Júróvisiona....Er nú að útsetja það fyrir kór, en Raggi Bjarna eða Bogomil Font voru þeir sem ég vildi helst láta syngja lagið, sem er meira í stíl 1930 til 1950 , en dagsins í dag. Ég hef ekki séð þau ljóð sem unnu keppnina síðustu ár, svo ég hef ekki samanburð. Mér finnst að "ljóð" sem ekki hafa stuðla,höfuðstafi eða rím ættu að kallast eitthvað annað en ljóð....Sem tónlistarmaður, vil ég hafa ákveðið form og hrynjanda í ljóðum, svo að maður þurfi ekki að reyna að gera lag við "hrynlausan óskapnað"  Ljóð eins og ég yrki, eru ekki í tísku kannski, en "formleysið" í nútíma "ljóðum"  er kannski ástæðan fyrir miklu minni eftirspurn eftir ljóðum í dag, miðað við daga Davíðs Stefánssonar og eldri skálda.... HÉR SET ÉG MITT LJÓÐ FYRIR NEÐAN.....

 

                  

Of feiminn.

Hugsa ég löngum um horfna tíð,                                huggun og gleði það er.
Þá stendur eftir svo björt og blíð                                     brosandi myndin af þér.

Ung vorum bæði,ég unni heitt,                                   ekki samt vissi þinn hug.                                        Ráð til að vinna þig viss´ei neitt,                             vantaði kjark þá og dug.

Veggurinn milli hann var of hár                         viðkvæmur, feiminn ég sat,                                             um það hvort líkt brynnu okkar þrár                             alls ekki vitað ég gat.

Stundum, við björtustu brosin þín                          bjarmi í augunum sást.                                  Hrifnæm og barnaleg hugsun mín                         hélt kannski það vera ást.

Aldrei, ég vita mun ár og síð                                         ást, hvort þú hafðir á mér.                                       Hugsa ég löngum um horfna tíð                                  horfi á myndina af þér. 

 

FÚLT. Gat ekki sett ljóðið venjulega inn,(copy / paste ) tölvan ólagar það. Set það samt inn, því svona ljóð, eru í formi, þótt þeim sé vitlaust raðað upp.......


"TENORARNIR ÞRÍR" tónleikar með þremur tenorum, í Háteigskirkju,05.02.2014 kl. 20:00

            Tenorarnir þrír.

Voru það ekki Pavarotti,Domingo og Carreras ?   Það er satt, að þeir eru þekktir sem slíkir,

en aðrir sem halda slíka tónleika eru þá kannski "Þrír tenorar" .

Ég fékk æði fyrir því í nóvember að halda "tenoratónleika", sem áttu að vera í desember, og

EKKI með jólalögum, þar sem mér finnst slíkir tónleikar allt of margir á þeim tíma, og vildi

bjóða upp á val.... Aðeins einn var tilbúinn að syngja með svo stuttum fyrirvara, Einar Clausen,

en hinir voru uppteknir, eða þurftu lengri tíma. Af sjö tenorum sem ég ræddi við voru ALLIR

jákvæðir og til í að syngja svona tónleika, nema helst Snorri Wium, sem ég spurði þá, hvort hann

"vildi ekki halda fram hjá " hinum hópnum, sem hefur komið fram með mismunandi mannskap 

undanfarin ár....

Ég spurði þá sem ég ræddi við jafnframt, hvort þeir væru til í að "stökkva inn" og redda jobbum, ef

einhver kæmu inn, t.d. árshátíðir, og það vantaði tenor, vegna veikinda, eða annara ástæðna.

 Þeir voru allir til í það og því ætti að VERA NOKKUÐ ÖRUGGT að hægt sé að FÁ ÞRJÁ TENORA TIL AР

SYNGJA Á ÁRSHÁTÍÐINNI fyrir þá sem vilja HAFA FLOTT PÓRGRAMM !

HRINGIÐ Í MIG, Kára Friðriksson í síma 6910665, eða þá Einar Clausen í síma 8474200 eða Egil

Árna Pálsson síma 6910900, en við erum þeir sem munum syngja á tónleikunum í Háteigskirkju

þann 5. febrúar, klukkan 20:00, píanóleikari verður þar, Nína Margrét Grímsdóttir.

Hinir tenorarnir, sem gætu sungið fyrir ykkur, eru: Hlöðver Sigurðsson, Gunnar og Guðbjörn

Guðbjörnssynir og svo "lærisveinn Kristjáns Jóhannssonar" sem hann mælti með, Gunnar Björn

Jónsson. Fleiri píanóleikarar voru líka tilbúinir, ef jobb dyttu inn og peningar væru í boði.....

Það verður "GRUNN PRÓGRAMM" sem allir verða að geta sungið, með öðrum, og svo fá menn að

syngja einir, eitthvað sem þeir velja sjálfir, og gera best.....

Tónleikarnir okkar byrja á íslenskum lögum, og dúettum: Máttur söngsins, Þú eina hjartans yndið

mitt, Rósin, Sólsetursljóð o.f.l. Þar næst syngjum við hver eina óperettuaríu og endum saman með

Wien, du stadt meina Traume.   EFTIR HLÉ , verða óperu aríur, jafnvel upp á C og Cís......Einnig 

þekkt "tenorlög" á ensku. (Ég syng Be my love, sem Mario Lanza gerði frægt, MEÐ HÁA CÉI !) 

Ég ætla ekki að telja upp alla efnisskrána, en lofa SPENNANDI og fjölbreyttum tónleikum.

Vonandi munum við tenorarnir svo fá einhver störf við að syngja, á FLOTTUM  skemmtunum eftir að

þetta fréttist.....

Virðingarfyllst, Kári Friðriksson . 


Milljón dollara tenorinn, og við hinir.

Ágætu íslendingar.

Ég hef notað bloggið til að losna við pirring vegna ýmisa hluta,sem mér finnast ekki í lagi. Mér finnst mismunun af ýmsu tagi ekki góð. Nú ætla ég að skrifa um tenora, styrki frá stórfyrirtækjum, sem sumir fá, en sumir alls ekki og þöggun af ýmsu tagi.                                                                                      Árið 2006 var enn "góðæri" og sum fyrirtæki virtust allavega hafa nóga peninga. Þess sá líka vott í listum, sem fengu styrki, sem aldrei fyrr. Ég fór að huga að geisladiskaútgáfu og sótti m.a. um styrki, skriflega til 120 fyrirtækja,flestra stórra, án þess að nokkurt hefði áhuga á að styrkja mig.  Nokkru síðar kemur orðrómur um að Icelandair og fleiri fyrirtæki ætli sér að styrkja íslenskan tenor "til útrásar"og heyrði ég töluna Milljón dollarar í því sambandi. (Sumir sögðu pund, enda var útrásin mest í Bretlandi.) Garðar Thor Cortes, myndarlegur og hinn fínast söngvari fékk Einar Bárðarson sem umboðsmann, og komst þó nokkuð á kortið um tíma, í Bretlandi. Einar hvarf svo snögglega, þegar sjóðirnir fóru að minnka og í dag býr Garðar á Íslandi, kennir eitthvað í skólanum hjá pabba sínum og fær að syngja í óperunni, sem tenor númer tvö. Kannski tvær sýningar, en aðaltenorinn fær fleiri sýningar.                                                                                                                           Þetta kom í hug mér í gær, þegar ég var að horfa á sjálfan mig syngja Nessun dorma, með undirleik Árna Ísleifssonar . Hafði ekki horft á það vídeó árum saman, en var bara skolli ánægður með mig, enda upptakan úr mun stærri sal en flest , sem ég tek upp í stofunni heima. Þær upptökur eru þó með sinfoníuhljómsveit, sem er flott, en röddin hljómar betur og eðlilegar í stærri sal.  Ég sá Nessun dorma með Garðari, og hlustaði á það. Þá sá ég gagnrýni á mig, en mínu kommenti hafði verið eytt. Einar Bárðar ,sem setti vídeóið inn hafði svo blokkerað mig frá síðunni.                                             Ég hef gagnrýnt söngvara á sanngjarnan hátt tel ég, og hef fengið fullt af gagnrýni á mín vídeó. Man eftir að hafa svarað (á málefnalegan hátt, að ég tel) ljótri og niðurlægjandi gagnrýni á mig, hvað ég héldi að ég væri, væri miklu lakari en Garðar og Jóhann Friðgeir...Ætla ekki að hafa það eftir, en ákvað að segja mína skoðun. Sagði að þrátt fyrir að Garðar hefði nokkuð fallega rödd, og færi almennt vel með dægurlögin, sem hann syngur í míkrafón, þá væri röddin ekki kraftmikil og ætti það til að hanga dálítið neðan í tóni þegar hann tekur svolítið á, mest í óperuaríum, en einnig heyrir maður því bregða fyrir í dægurlaga upptökunum.  Ég gagnrýndi það að láta svona sleppa í gegn, á disk. Sagði að listrænn stjórnandi hefði ekki staðið sig nógu vel. Veit ekki hvort það var Einar Bárðarson, sem heyrði ekki þegar hann var aðeins neðan í tóni,eða einhvar annar....Þetta er meira áberandi á nýjasta diskinum, þar sem t.d. óperuarían Che gelida manina er með áberandi lægri tónhæð í kaflanum "chi son" sem fer upp á Bb. Þar tekur Garðar dálítið á, röddin þyngist, en lækkar líka. Þetta er á fleiri stöðum, en hefði alls ekki átt að fara á diskinn. Hann hefði getað sungið þetta aftur, aðeins léttar, og í réttri hæð. Ef ég hefði verið að hlusta þar,hefði diskurinn orðið betri.            Ég skrifa þetta ekki síst af því að ég var "beittur þöggun" , en gagnrýnin á mig fékk að standa áfram hjá Einari.                                                                                                                             Þöggun, er því miður víða til staðar, þrátt fyrir að fréttamenn gumi af góðri og víðsýnni fréttamennsku.  Þeir standa með þeim sem ráða, og hleypa ekki hverjum sem er inn í umræðuna.   Ég lenti fyrst í þessu þegar ég hjólaði í  "kerfið" og kærði Fjölskyldu og styrktarsjóð BHM, BSRB og KÍ fyrir jafnréttisbrot. þá fékk kona í fæðingarorlofi pening úr sjóðnum, en ekki karl.  Ég fékk úrskurð frá Kærunefnd jafnréttismála um að þetta væri jafnréttisbrot, en ALLIR FJÖLMIÐLAR sem fengu bréf frá mér um þetta, beittu þöggun... Fjórða valdið brást....Jafnréttisbrot á körlum eru EKKI FRÉTTNÆM !      Haustið 2008 var ég sá fyrsti sem hélt styrktartónleika fyrir mæðrastyrksnefnd, mér fannst merkilegt líka, að þar ætlaði ég að syngja 15 HÁA C , sem er afrek, mundu flestir söngvarar segja. Aðeins EINN fjölmiðill svaraði E-mail og tók viðtal, takk fyrir það DV . Hinum virtist skítsama um fátækt fólk eða tónlistarafrek.....                                                                                                                 Eða þegar ég skorði tenorsöngvara á hólm, um tenorhlutverk (ætti að vera spennandi fjölmiðlaefni) og gagnrýndi stjórn óperunnar og óperustjórann fyrir rangt val í hlutverk og laumupúkahátt með hlutverkaval. Fólk fengi hvorki að vita hvað yrði flutt, né tækifæri á að syngja fyrir.  ÞETTA vildu fjölmiðlamenn flestir "bara þagga niður" og taka þar með ólýðræðislega afstöðu, nema Heimir og Kolla á morgunútvarpinu, sem hringdu í mig.......Heimir sagðist ekki vilja "taka þátt í þöggun" ( Sem ég hafði nefnt í bréfi til hans og fleiri.)  Bergsteinn, á fréttablaðinu neitaði svo, fyrir hönd blaðsins að birta grein, sem ég sendi.(Geymi svar hans...)  Morgunblaðið birti hins vegar grein eftir mig, þar sem ég gagnrýndi óperustjórann, Stefán Baldursson og skoraði Jóhann Friðgeir á hólm, af syngja aríur úr Rigoletto. Taldi ég að hann væri of þungur og með tæplega nóga hæð, til að syngja þetta háa og glæsilega tenorhlutverk. Ég hafði sungið það (utanað) inn á youtube í heild árið áður, taldi það eitt af mínum bestu hlutverkum og var mjög óánægður með það að hafa ekki fengið vitneskju um að það ætti að sýna Rigoletto, hvað þá að fá að syngja fyrir. Ég tek fram að Jóhann Friðgeir er með mjög flotta og kraftmikla rödd,en hún passaði ekki að mínu mati fyrir hlutverk hertogans. Tveir af gagnrýnendum sýningarinnar sögðu líka hreint út, að það hefði átt að velja einhvern annan í hlutverkið, það hefði ekki passað fyri hann.                                                                                       Ég hef fengið bæði fullt af skömmum fyrir þetta, en einnig klapp á bakið... Sumir töldu að Jóhann Friðgeir hefði átt að syngja með mér á áskorendatónleikum og SÝNA að hann væri betri fyrir þetta hlutverk, en ég. Ég hélt í alvöru að hann hefði metnað og þor, til að gera það, en auðvitað er ég með hrikalega örugga og mikla hæð, svo að það hefði kannski fallið mér í hag ? Kannski von að hann þyrði ekki .. Ég get samþykkt það að hann komi mjög líklega betur út en ég í dramatískari aríum eins og Vesti la giubba til dæmis, en ég syng hins vegar Che gelida manina og Di quella pira upp á C, (sem var ekki gert af Gissuri Páli eða Jóhanni Friðgeiri í nýlegum uppfærslum)                                     Ég hef þó áhyggjur af því að tenorar, (allavega Jóhann Friðgeir) VILJI EKKI syngja á sömu tónleikum og ég. Mig grunar, en get ekki fullyrt að sú hafi verið raunin á Stjörnuljósatónleikum sem haldnir voru til styrktar Hagbarði frænda mínum nú í vikunni. Ég bauðst til að syngja, nefndi nokkur lög, og ekki síst háa Cés aríur, sem ég syng gjarnan...Þá kom svar að "það væri í rauninni komið nóg af aríum"  hvort ég gæti ekki sungið frekar lag eftir sjálfan mig, sem ég samþykkti.  Mér datt þó í hug að með því vildu viðkomandi skipuleggjendur hlífa Jóhanni Friðgeiri við að lenda í samanburði við mig. Ef ég syngi aríur sem fara jafnvel upp fyrir C, eins og í La donna e mobile, sem einmitt er ein aðal arían í Rigoletto, óperunni sem ég var nógu kaldur til að skora á einn  frægasta tenor landsins um að keppa við mig um hlutverk í . TÓNLEIKAMORGUNINN var hringt í mig og sagt að það væri svo rosalega mikið af efni á tónleikunum......Ég skildi að það væri "ekki pláss" fyrir mig, en verð að segja að ég varð dálítið, bæði sár og pirraður. Mig grunar að Jóhann Friðgeir hafi ekki viljað syngja, ef ég syngi. Kannski afsannar hann það, með því að syngja tónleika með mér einhvern daginn ....Gætum hæglega sungið "Wagner-Verdi afmælistónleika" og fengið fullt af aðsókn....                                      Það væri auðvitað spennandi fyrir þá sem halda árshátíðir, að fá okkur báða til að syngja. Hann mundi sennilega syngja dramatískari aríur, en ég háa Cés aríur. Fólk verður að átta sig á því að ég var ekki að gera lítið úr honum sem söngvara, þannig séð, heldur benda á að hann passaði betur fyrir þyngri hlutverk. Ekki datt mér í hug að skora á hann að keppa um hlutverk Turiddu eða Cavaradossi, og kann þó bæði... En Hertoginn,Rodolfo og Edgardo, þeir henta mér nokkuð örugglega betur en honum. ÞETTA hefði óperustjórinn átt að vita, ef hann væri góður í sínu fagi.
Jæja, ég fer nú að hætta þessu bráðum, en vil segja, að ég hef enn ekki komið diskinum mínum út,sem ég tók þó upp 2008, korteri fyrir kreppu. Ég missti vinnuna þá um vorið, og einnig dró úr tekjum hjá konunni minni, sem rekur hársnyrtistofuna Heru, í Kópavogi. Í dag vantar mig c.a. hálfa milljón til að fá hann framleiddan og borga það sem þarf. Ég pirra mig á stórfyrirtækjunum, þar sem menn átu gull, og settu öll eggin í sömu körfuna, til að gera Cortes frægan, en "gáfu skít í mig". Á mínum diski eru aríur og canzónur sem síðar er hægt að bera saman við diska frá öðrum íslenskum tenorum. Ég er með Nessum dorma, eins og Garðar. La donna e mobile eins og nokkrir,t.d. Stefán Íslandi. L´ultima canzone eins og bæði Gissur Páll og Kristján . Svo er á diskinum bæði Di quella pira, sem bara Ólafur Árni hefur sungið á disk og arían Pour mon ame, sem ég held að hafi ekki komið út, með íslenskum tenor. HÚN er með NÍU Háa Céum.....                                                             Fyrst ekkert fyrirtæki vill styrkja mig, hef ég verið að hugsa um hvort ég ætti ekki bara að fara með söfnunarkassa niður í bæ, helst í Hörpuna, eða annars staðar á fjölfarna staði innanhúss og syngja, með karaoke nokkur lög, bæði af diskinum, og einnig íslensk lög og fleira . Kannski almenningur vilji frekar gefa nokkrar krónur, heldur en "auðvaldið"    Man nú eftir pirringi yfir heilsíðuauglýsingu frá Arion banka, (mínum banka) sem hafði nýlega neitað mér í annað sinn um styrk , en eyddi stórfé í að segja " TAKK ÓLI " . Til hvers ? Bara til að reyna að tengja sitt nafn við sigurvegara, á aumlegan hátt. (Maður gæti gubbað)  Þeir hefðu frekar átt að gefa honum rausnarlega upphæð í "starfslokasamning" frá þjóðinni, fyrir góðan árangur.....
Jæja.  NÚ ER ÞETTA AÐ VERÐA NÓG. Samt er ég ósáttur við Íslensku óperuna fyrir að hafa ekki döngun í sér til að flytja Wagner óperu á afmælisárinu......

Kári Friðriksson 


Víkingur REKINN af Fjörukránni,fyrir að skrifa á Facebook. Málfrelsi lítils metið af atvinnurekenda.

Þann 8. september síðastliðinn skrifaði ég blogg, þá nýkominn úr aukavinnu sem ég hef haft í þá 13 og hálft ár, sem er að syngja og skemmta í víkingabúningi,matargestum á Fjörukránni í Hafnarfirði.
Rétt er að nefna að á þeim tíma hefur ýmislegt gengið á og stundum hef ég verið við það að hætta, tvisvar hefur Jóhannes Viðar hringt í mig og beðist afsökunar á því sem hann hafði sagt og ég þá sætt mig við það og unnið áfram. Er ég nær örugglega sá sem hef unnið lengst á Fjörukránni, enda er ég þolinmóður og hef sætt mig við ýmislegt,enda að reyna að vinna fyrir fjölskyldunni. Margir hafa hætt jafnvel í illu, eftir stuttan starfstíma, enda forstjórinn þekktur fyrir að hafa "erfitt skap".                                                                           Þegar ég mætti í vinnu næst, eftir að hafa skrifað umrætt blogg, sem ég læt fylgja með orðrétt á eftir , kallaði Jóhannes Viðar mig inn á skrifstofu í hléi og sagðist ekki vilja hafa það að ég skrifaði neitt um Fjörukrána á Facebook,(eða annars staðar) og gerði ég það aftur yrði ég rekinn. Auk þess yrði ég að taka tafarlaust út , það sem ég hefði skrifað. Kannski var mælirinn orðinn fullur, eftir 13 og 1/2 ár af því að vinna hjá manni sem maður gat aldrei vitað hvort væri í fínu, eða brjáluðu skapi þegar maður mætti í vinnuna.  Ég ákvað að standa á mínu, það ER MÁLFRELSI á Íslandi og bölvuð frekja og yfirgangur að ætla að stjórna því hvort maður tjái sig um starf sitt, sem hefur verið stór partur af lífi mínu í rúm 13 ár. Í ofanálag var ekkert í því sem ég skrifaði neikvætt, nema að ég ætti kannski skilið að fá meira borgað fyrir að standa mig vel á svona stórum kvöldum, (að syngja EINN, fyrir 170 manns). Það hefur Jóhannes aldrei mátt heyra á minnst, að borga aukalega fyrir meira álag.....Hann verður því nískari eftir því sem hann verður ríkari....Laun fyrir söng þar hafa dregist saman um einn þriðja af því sem þau voru, þegar ég byrjaði...SAMT er hann að nota færri söngvara fyrir sömu stærð af gestahóp...
Ég endurskrifa hér fyrir aftan það sem ég skrifaði þann 8. sept, orðrétt:                                                                                            Söng aleinn fyrir rúmlega 170 manns, á Fjörukránni í kvöld....Það gekk reyndar mjög vel, enda er ég raddmikill og fær í að koma fram...Man samt að þegar ég var að byrja þar fyrir rúmum þrettán árum þá var reglan sú að söngvari númer tvö, bættist við þegar fleiri en 25 voru í "Víkingamatseðli". Þá hefðu verði fimm í hóp að sinna svona mörgum. Reyndar voru ekki allir söngvararnir þá með "óperurödd". Það þarf talsverðan kraft til að heyrast þokkalega þegar maður syngur yfir stóra salinn á neðri hæðinni, og reyndar líka "Tunnusalinn" og Hofið" uppi. Þarna næst oft frábær "Brekkustemming" og sennilega enginn veitingastaður á Íslandi þar sem hópar geta komið og heyrt flotta söngvara syngja fyrir sig PLÚS að geta sjálfir sungið fjöldasöng....Eftir "Íslenska prógrammið" í kvöld söng ég t.d. með gestum, Vem kan segla,My bonny, Che sara,Wild rower, Det var brennivin í flasken,Once upon a time og Ring of fire.... (Kann líka fullt af "íslenskum fjöldasöngslögum".)       Ég fer reyndar út fyrir Fjörukrána með mína hæfileika og syng stundum í veislum,bæði einsöng og stjórna fjöldasöng....(Þá oft á aðeins hærra kaupi). Maður nær nú samt dálitlum pening ef maður fær hátt í tíu "job" á mánuði á Fjörukránni.   Staðreynd samt að "fimm söngvarar kosta meira en einn" , þannig að kvöldið í kvöld hlýtur að koma vel út "kostnaðarlega séð".   Listrænt séð ?  Það var góð stemming.....                                                                         SVONA var nú textinn sem ég var rekinn fyrir að birta á Facebook. Dæmi hver sem vill, hvernig sá maður er, sem lætur sér detta í hug að hóta öllu illu til að losna við þessi skrif af netinu.                      Það er MARGT MUN VERRA sem ég gæti skrifað um Fjörukrána og margir fyrrverandi starfsmenn gætu vitnað um.                                        Læt þetta duga í bili, og vona að mér líði betur með það að hafa aðeins "opnað mig" .                                                                       Kári Friðriksson tónlistarmaður og "málfrelsisunnandi".S: 6910665     Bendi veitinghúsaeigendum  hér með á að vilji þeir bjóða upp á "Þjóðlegt tónlistarprógramm á sínum stöðum, þá er ég á lausu.....


10 hræddar sópransöngkonur ! Hræddar við óperustjórann ?

Ég heiti Kári Friðriksson og er tenorsöngvari.
Ég fékk þá ágætu hugmynd um daginn að bjóða "Menningarnótt" og fleiri
aðilum upp á "tónlistarpakka" með tenor / sópran dúettum . Auk þess mundu
söngvararnir syngja sér sínar glæsilegustu óperuaríur (eða óperettuaríur).
Ég fann netfang hjá 15 íslenskum söngkonum, á opera.is og sendi þeim boð
um að æfa og syngja með mér prógram með dúettum. Þrjú netföng reyndust vera
úrelt, tvær svöruðu strax kurteislega að þær væru uppteknar í sumar,önnur
í Noregi, Hulda Björk og hin hér á Íslandi, Auður Gunnarsdóttir.
HINAR TÍU SVÖRUÐU EKKI !
Ég hef grun um að ótti við óperustjórann gæti ráðið nokkru um það. Alþekkt
er að ég hef gagnrýnt hann og stjórn óperunnar fyrir ýmislegt, m.a. pukur
og leynimakk með það sem verður á efnisskrá og "rangt val" í hlutverk .
Óperustjórinn er ekki með tónlistarmenntun (sem mér er kunnugt um)og sumir
hafa í mín eyru gagnrýnt ýmislegt sem hann hefur ákveðið,ÁN ÞESS að þora að
gera það opinberlega. Ég hef reyndar fengið að heyra það að ég hafi TRYGGT
að ég muni ALDREI fá nokkuð að gera við óperuna, SAMA hvað ég batni sem
söngvari. Það sé reiði í minn garð hjá óperunni og þá verður skiljanlegt
að söngkonur vilji ekki FALLA Í ÓNÁÐ með því að syngja með mér.
Ég benti þeim á að hlusta á aríur og dúetta með mér á youtube. Er "karifrid" þar og hægt að finna þar með mér dúettinn O soave fanciulla,(sem mér finnst betur sunginn en var í uppfærslunni OG sjónvarpsskotinu sem ég sá í vetur).
Einnig Libiamo,Parigi o cara,og svo dúetta atriðið úr Rigoletto. Þar syng ég mjög gott Des með sópraninum í lokin,( ólíkt því sem var í Íslensku óperunni). Einnig er fullt af aríum og sönglögum þar á youtube með mér .
Ég hef ennþá áhuga á að fá "dúett partner" ef einhver þorir....
Ég ætla svo að birta nöfn þeirra tíu sóprana sem ekki svöruðu E-mail frá mér
hér á eftir . Vonandi fá þær eitthvað að syngja í óperunni...
Bylgja Dís, Hallveig Rúnars,Helga Rós,Sigrún Hjálmtýs,Signý Sæm,Hlín Péturs,
Vala Guðna,Þóra Einars,Magnea Tómas og Kristín R. Sig .
Þetta blogg var í fróðleiks og kynningarskyni , en ég býð auðvitað upp á "einsöngs pakka" auk þess að hafa fengið vilyrði hjá Geir Ólafssyni um að syngja með mér "Mario Lanza tenor tónleika" sem er flottur "pakki" með fjölbreyttri tónlist, enda söng Lanza í kvikmyndum auk þess að vera flottur
óperutenor. Ég tek einnig að mér að leiða fjöldasöng. Stundum hef ég fyrst
sungið þrjú lög eða aríur meða karaoke undirleik en stjórnað svo fjöldasöng með gítar að vopni.Flottur "árshátíðarpakki".
Ég hef þann metnað að syngja ALLTAF (næstum alltaf)lag eða aríu sem fer upp á Háa C þegar ég kem fram .(Fáir aðrir tenorar gera það.)
Ég set hér netfang og símanúmer á eftir, ef ykkur sem lesið vantar söngvara,
kórstjóra eða SÖNGKENNARA . Það er skrýtið að fleiri skuli ekki prófa að koma í söngtíma til mín, ég hef hjálpað sumum að bæta hæðina talsvert, hún er jú mikilvæg til að standa upp úr meðalmennskunni. Get ÞAGAÐ yfir því, ef þið viljið ekki að það fréttist að þið kíkið í tíma til mín .
Virðingarfyllst, Kári Friðriksson, "Háa Cés tenor" með meiru...
karifrid@hotmail.com Sími: 6910665

" Mario Lanza, tenor tónleikar" Geir Ólafsson og Kári Friðriksson syngja.

Ég hef meira verið að syngja með gítar að vopni , íslensk þjóðlög og annað efni fyrir matargesti Fjörukrárinnar heldur en með píanóleikara síðari ár. Hef þó metnað til að syngja meira þannig og söng t.d. "Þrír tenorar" tónleika árið 2007 með bræðrunum Guðbjörnssonum og 7 einsöngstónleika árið 2009 með Nínu Margréti Grímsdóttur, sem einnig lék píanóverk .
Ég ER með hljómdisk næstum tilbúinn og syng auðvitað af og til í jarðarförum, afmælum og á árshátíðum eins og gengur.
NÚ vil ég bjóða upp á mjög flottan "tónlistarpakka" þar sem Mario Lanza er minnst með því að syngja eingöngu lög og óperuaríur sem hann söng .
Ég talaði við Geir Ólafsson, sem er þekktur fyrir að fara vel með dægurlög liðinna ára . Hann er einnig hinn ágætasti tenor, hefur jafnvel stundað nám hjá sjálfum Kristjáni Jóhannssyni. Hann sagðist syngja með mér, ef mér tækist að selja pakkann. Sennilega er Geir meira á heimavelli í dægurlögunum en ég, en ég mun þó syngja þau líka. Hef t.d. sett Be my love inn á youtube með mér. Það lag var eitt af þeim sem gerðu Mario Lanza að stórstjörnu og seldist í milljónum eintaka . Geir mun örugglega syngja Serenade úr óperettunni Stúdentaprinsinn og við syngum líka saman nokkur af lögunum í stíl "Tenorarnir þrír".
Líkleg lög auk fyrrnefndra eru t.d. O sole mio, La donna e mobile, Nessun dorma,Una furtiva lagrima og Recondita armonia......(Kannski, O Danny boy.)
Ég hef háleitar hugmyndir um að selja "pakkann" t.d. á veitingahús, þar sem fínn kvöldverður með svona skemmtiatriðum gæti gengið vikum saman.
Enginn vafi er á því að unnendur klassískskrar tónlistar og fólk í eldra kantinum vildi gjarnan fara á slíkt "Galakvöld" enda var Mario Lanza mjög vinsæll á sinni tíð. Þetta yrði mun ódýrari pakki heldur en stórsýningar eins og Abba sýningin. Hótel Ísland (Park inn) er efst á lista hjá mér, en allt niður í Iðnó kemur til greina. Þar hafa,þrátt fyrir smæð staðarins ,gengið lengi þematengdar sýningar og tónleikar.
Ég hef sent stærstu sumarhátíðum upplýsingar om "pakkann" en er ekki komin með neitt fast.....Þeir sem hafa áhuga geta haft samband við mig, (eða Geir)
ég hef netfang karifrid@hotmail.com Sími: 6910665
Virðingarfyllst, Kári Friðriksson, tenorsöngvari.

Íslenska Óperan. Til hamingju með Eldborgarsalinn !

Ágæta tónlistaráhugafólk.
Undirritaður hefur stundum gagnrýnt óperuna fyrir ýmislegt,bæði í blaðagreinum og bloggi.
Nú er mér ljúft of skylt að greina frá ánægju minni með þau vinnubrögð sem þar eru stunduð,þar sem nýlega hefur fjöldi íslenskra söngvara sungið "fyrirsöng" í Eldborgarsal Hörpu og einnig fréttist fyrir þó nokkru hvaða óperu stæði til að flytja á næstunni.
Það hafa allir söngvarar sem ég hef rætt við um þetta verið sáttir við þetta og vonandi verður þetta raunin í framtíðinni.Þá getur enginn talað um "pukur og leynimakk" eða "klíkuskap" eins og stundum hefur verið hvíslað um allt frá þeim dögum þegar Garðar og Ólöf Kolbrún réðu ríkjum.
Ég verð að taka fram að þrátt fyrir að ég hafi gagnrýnt stjórn Íslensku Óperunnar og óperustjórann Stefán Baldursson þá hefur hann sýnt kurteisi
í svörum sínum til mín eins og sæmir þroskuðum stjórnanda ,rökrætt málin og meira að segja sendi hann mér boð um prufusöng nú í desember.Takk fyrir það Stefán.
Auðvitað munu nokkrir tenorar koma til greina í hlutverk það sem ég vildi helst fá,Rodolfo.Það er tenorhlutverk þar sem helst þarf að geta sungið alla leið upp á háa C oftar en einu sinni (nema menn kjósi að lækka ) og auk þess þarf þó nokkurn raddþrótt og karlmennsku . Þó nokkur fjöldi tenora getur sungið "léttari" tenorhlutverk,án þess að henta í þetta. Svo er það einnig staðreynd að ennþá færri tenorar henta fyrir hlutverk Manricos í óperunni Il Trovatore,sem sumir telja að verði flutt í haust. Ég tel að ég sé einn af örfáum sem gæti sungið það,hef jafnvel sungið erfiðustu aríuna á tónleikum sem ég hélt haustið 2008 til styrktar Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur "15 Háa Céa tónleika" þar sem ég gaf aðgangseyrinn mæðrastyrksnefnd.
La boheme er nokkuð auðveldari fyrir tenorinn að sumu leiti,hafi hann góða hæð.Hann þarf ekki að vera eins kraftmikill,en syngja ljúft og rómantískt á köflum. Ég setti nú um daginn Che gelida manina og O soave fanciulla á youtube,fyrir mig og aðra til að sjá / heyra hvernig ég syngi þessa dagana. Hafði þá sungið fyrir í Eldborgarsalnum fimm dögum fyrr.Ég er "karifrid" á youtube,ef einhver vill finna upptökuna og hlusta. Allavega er þarna samanburður við þann,eða þá sem munu syngja Rodolfo.Ég kann bæði hlutverkin.
Þetta blogg er sett inn til að sýna að ég get allt eins hrósað og gagnrýnt.
Það er almenn ánægja með Íslensku Óperuna þessa dagana og vonandi verður svo áfram.(Vonandi fæ ég svo enn fleiri störf við söng út á bloggið.Reyndar hafa youtube upptökurnar gefið mér slatta af söngstörfum,mest þó Rósin.)
Virðingarfyllst, Kári Friðriksson,tenorsöngvari. karifrid@hotmail.com Sími: 5640665/ 6910665

Vonbrigði með Jonas Kaufmann.

Ég er tenorsöngvari og hef hlustað á tenora og þeirra söng árum saman. Það var með mikilli tilhlökkun sem ég fór á tónleikana með konu minni til að hlusta á heimsfrægan tenorsöngvara,sem syngur "hetjuhlutverk" í frægustu óperu og tónleikahúsum veraldar.Ég hef talsvert hlustað og horft á hann á youtube vefnum þar sem fjöldi sönglaga og aría með honum eru til sýnis.Almennt hefur mér fundist hann syngja margt vel og sumt virkilega "músíkalskt".Hann syngur gjarnan píanissimo og notar veika tóna oft virkilega fallega.Það er flott að geta gert þetta vel þegar það á við,en það er leiðinlegt þegar söngvarar nota veikan söng endalaust til að "spara sig" og taka helst ekki vel á því nema þeir neyðist til. Í sumum "kommentum" sem ég hef lesið á youtube hefur fólk haldið því fram að Kaufmann sé ekki með stóra rödd og heyrist illa í stærri húsum.Sumir gagnrýna tæknina (eða tæknileysið) og segja að hann verði fljótt "búinn". Ég hef ekki tekið mark á þessu fyrr en nú,hef verið ánægður með margt sem hann syngur,t.d. Ingemisco úr Requiem eftir Verdi.Fallegt piano og styrkleikabreytingar.Samt verð ég að segja að ég,sem sat á öðrum svölum ásamt konu minni og öðrum tenorsöngvara (sem heldur var ekki of sáttur við söng Kaufmanns) ég HEYRÐI ILLA í hetjutenornum.Ég sit nú við tölvuna,er að HLUSTA á ruv upptöku af tónleikunum.Þar heyrist MIKLU BETUR í söngvaranum,enda míkrafónar í grennd. Ég er ekki viss hvað veldur,kannski er Kaufmann bara með frekar litla rödd (þótt hann sé titlaður stórsöngvari).Kannski stóð hann OF AFTARLEGA,í raun dálítið inni í hljómsveitinni.Ég vona að þetta sé raunin,því það er hægt að laga það með því að láta söngvarann eða sólista með öðruvísi hljóðfæri standa framar.Ég er tilbúinn að mæta á æfingar hjá hljómsveitinni og gera með henni tilraunir um hvar söngvari ætti að standa til að það heyrist vel í honum. Kannski vantar bara reynslu hjá hljómsveitinni og fólki sem vinnur í kring um hana.Stjórnandinn stendur stutt frá sólistanum og veit ekki hvort hljómsveitin spilar of sterkt og drekkir honum.Einhver verður að sitja aftarlega í salnum og segja hvort allt heyrist vel.Ég allavega vonaðist til að heyra vel í söngvaranum og vonast til að stjórnandinn og allir í hljómsveitinni vilji það líka. Sumum finnst röddin í Kaufmann mjög falleg,öðrum ekki,en allavega hljómar hann ekki eins og það sem ég tengi við "tenorrödd".Talsvert baritonleg rödd,ekki mikið "ping" eða bjartur tenor hljómur OG mér fannst vanta kraft þar sem við átti...Hann hljómar mun betur í útvarpinu heldur en í mínu minni frá tónleikunum,svo að ég mundi verða hrifinn og halda að röddin sé "dökk og karlmannleg tenorrödd" Því miður heyrðist ekki þessi litur eða karlmannleiki þangað sem ég sat.Kannski ég verði að SLEPPA því að fara á tónleika og treysta á útvarpið... Ég vil beina því til söngvara sem munu syngja í Eldborginni að hugsa líka um fólkið sem situr aftan við miðju.Ef þið "sparið ykkur" svona mikið eins og Kaufmann gerði mun fólk sem situr þar ekki verða hrifið.Ég verð að segja það að mér fannst óþægilegt og "plebbalegt" hvað fólk klappaði mikið og jafnvel "stóð upp". Mér finnst að fólk eigi ekki að standa upp nema eitthvað sé FRÁBÆRT,sem þetta var EKKI,það sem ég heyrði. (Ég og tenorsöngvarinn sátum og létum ekki kúga okkur.)Ég verð að bæta því við að ég hef ALDREI áður farið á tónleika og fundist heimsfrægur söngvari EKKI vera betri "læv" heldur en á vídeói eða diski (plötu).Samuel Ramey,Paata Burchuladse,Jose Carreras (þegar hann var ungur) voru öll MIKLU betri í sal..... Tók líka eftir að Kaufmann söng ekki ú eða i á erfiðum stöðum. Í Toscu aríunni varð það "brona Floria" og Í Lehar varð það "wie wonderbar". Graal söngurinn : Sein Retter ,ekki Ritter. Auðvitað svindla sumir á texta,en yfirleitt ekki þeir bestu.Domingo og Pavarotti hef ég aldrei heyrt svindla á texta. NIÐURSTAÐA: Falleg og músíkölsk rödd,EF maður er nógu nálægt til að heyra,þrátt fyrir of mikið af veikum söng og "meintu kraftleysi /og /eða of sterkum leik hjá hljómsveit." Þarf að svindla á texta,ekki oft óhreinn og dregur ekki vel í þó ekki stærri sal en Eldborgin er.Betri í útvarpi og upptökum heldur en af nokkru færi í sal. "Míkrafónsöngvari?Það er spurningin " Vonandi vekja þessi skrif einhverja umræðu OG bjarga okkur frá frekari MISTÖKUM ef um þau hefur verið að ræða við uppstillingu söngvarans miðað við hljómsveit. Virðingarfyllst, Kári Friðriksson.

Mig langar að BÆTA VIÐ nú þremur árum seinna!  
Ég talaði um að illa hefði heyrst í Kaufmann, en hann var FYRSTI SÖNGVARI sem ég heyrði í Hörpu.
Því miður þá er hann sá sem heyrst hefur einna best í, svona eftir á... Ég SAT reyndar aftarlega á öðrum svölum, sem ég hef alltaf passað mig á að gera ekki síðan. Sú staðsetning kann að hafa skemmt fyrir, en trúlega líka það hvað hann stóð mikið inn í hljómsveitinni....
ÞVÍ MIÐUR þá eigum við ekki marga söngvara sem HEYRAST VEL í Eldborg...  Og þeir sem heyrast  þeir "SLÁ Í GEGN"  eins og t.d. Hallveig Rúnarsdóttir gerði.....
ÉG SKORA á óperustjóramnn og þá sem aðstoða hann að SITJA AFTARLEGA þegar þeir hlusta á einsöngvara sem eru að syngja fyrir því að þeir SEM SITJA AFTARLEGA vilja LÍKA HEYRA . 
"Comprimario" söngvarar verða LÍKA að heyrast.....
Virðingarfyllst, Kári Friðriksson.


mbl.is Konurnar tóku andköf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Um bloggið

Kári Friðriksson

Höfundur

Kári Friðriksson
Kári Friðriksson
Tónlistarmaður,tenorsöngvari,trúbadúr,kórstjóri og tónmenntakennari.Yrkir ljóð,semur lög og stundar kraftlyftingar til að slaka á.Giftur og á þrjú börn.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 8872

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband