Ég ákvað loks að kjósa Höllu Hrund,(fyrir Ísland.)

Hún sagði beint út að við verðum að vernda auðlindir okkar fyrir erlendri ásælni. Hin Hallan vildi selja Landsvirkjun útlendingum (var sagt...) Arnar vill vernda þjóðina fyrir yfirgangi ESB, sem vill ráðskast með okkur og láta lög ESB vera rétthærri. (Hann hefur samt of lítið fylgi og verður ekki forseti.)
Ég var að hugsa um Katrínu, sem hefur getað unnið með "óvininum" í óþökk margra... Gleymum ekki að stjórnin þar á undan "SPRAKK" þar sem nýju framboðin voru með of miklar kröfur Björt "fortíð" og Píratar ...
Hún er samt með marga óvini "illa innrætta" sem gleyma að HINIR hafa líka unnið með "Sjálfgræðisflokknum". Alþýðuflokkurinn í "denn" Framsókn aftur og aftur... Samfylkingin líka... Svo "trompast margir" þegar Vinstri gænir leysa stjórnarkreppuna með því að vinna með "óvininum" og Framsókn.... Út af þessu "hatri" er betra að Halla Hrund verði forseti.
Baldur hef ég oft verið ósáttur við í gegn um árin, sem stjórnmálafræðing með skoðanir sem ég var ekki sáttur við. Orðrómur er líka um að hann sé hrokafullur og hafi jafnvel haft óviðeigandi samskipti við nemendur.....
Ástþór er kannski mesti hugsjónamaðurinn... Jón Gnarr hefur ekki fallið í þann pytt eins og sumir a' þykjast geta "lyft..." hinu og þessu... Hann segir að forsetinn sé "partýstjóri" sem haldi boð og kjassi börn og lömb.....
Ég gæti hafa kosið hann, en hann á ekki sjens...
ÉG TEL SKÁST AÐ KJÓSA HÖLLU HRUND.....
(Ég missti talsvert mikla virðingu fyrir frambjóðendum sem voru niðri á bryggju að þekkja fiska, handflaka og þekkja sjómannalög... Bakborði,stjórnborði,stefni og skutur var eitthvað SEM FÆSTIR KÖNNUÐUST VIÐ.... "Korter í Dovns" hefði einhver sagt um þannig fólk.
Þið ættuð að horfa á þessa keppni...Ha,ha,ha,ha...)
 

Munu flóttaleiðir lokast vegna vírgirðinga ? Engin svör frá fréttastöðvum eða almannavörnum og lögreglu.

Ég sendi netpóst á nokkra aðila snemma í nótt. Hugsanlega munu margir verða að flýja ef eldgos hefst. Vírgirðingar sem skilja að vegarhelminga geta komið í veg fyrir akstur,EF STÓR BIFREIÐ BILAR Á ÞEIM KAFLA !
Fréttamaður á ruv hringdi í mig nokkrum mínútum seinna og ræddi við mig, en ég hef ekkert séð eða heyrt í fjölmiðlum í dag um þetta GRAFALVARLEGA MÁL.

Ég sendi póst á Víði og einhvern Sólberg hjá almannavörnum, einnig á vísi,mbl,ruv o.f.l.
Nú ætla ég að senda sama bréf á fleiri hjá almannavörnum og lögreglunni og vona að einhver lesi póstinn.

Ef rúta, eða stór bíll bilar þar sem vegurinn er þrengdur með vírgirðingum MUN ENGINN KOMAST FRAMHJÁ.
Þetta gildir auðvitað um fleiri svæði en á Reykjanesi.Ef stórslys verður á suðurlandi og neyðarbílar komast ekki yfir Hellisheiði þá geta tapast mörg mannslíf.
Virðingarfyllst, Kári Friðriksson.




ER MEIRIHLUTINN RÚSSAR ?

Ég er að spá í hvort meirihluti fólks sem býr í löndum sem rússar eru nú að "bjarga"  SÉU FRÁ RÚSSLANDI ?   Munum átökin í Írlandi, þar sem mikil barátta hefur átt sér stað, Englendingar ( ekki rúussar ) að vernda sína, (og kúga Íra, líkt og rússar nú Úkraínumenn... ) ENDURTEKNING á sögunni á öðrum stað..... KANAR KÚGA ALLA SEM ÞEIR GETA..... 

 


mbl.is Stefnubreyting hjá Kína?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grínvísur um matareitrun á Dalvík, (frá 2014.)

Set inn kveðskapinn sem ég orti um matareitrun á Dalvík. 
Leituðu á heilsugæslu með matareitrun
mbl.is
Brest í ljóð:

Núna flýgur fiskisaga
fengu sumir illt í maga,
matareitrun mun nú plaga
menn, sem halda "fiskidaga."

Alvarlegum augum líta
atburðinn, á jaxlinn bíta.
Ýmist gubba eða skíta
allir sér á klósett flýta.

Matareitrun illþolandi
ekki neinum varð að grandi.
Nú er kátt á norðurlandi
nú mun allt í besta standi.

Salmonellu-súpa í pottum,
saurgerlar í krásum flottum
út af þessu ýmsir glottum
eins og kvæðið ber nú vott um

Kári Friðriksson, 2014.

Kína gefur tvo milljarða af bóluefni. FRÁBÆRT.

Sumar vestrænar þjóðir ,líka við, hafa pantað allt of mikið af bóluefni,þannig að fátækari þjóðir fá ekkert. (Kanadamenn keyptu þrisvar sinnum meira en mannfjöldinn er.)
KÍNVERJAR KOMA HÉR BEST FRAM.
(Við megum skammast okkar.)

 


mbl.is Kína gefur tvo milljarða bóluefnaskammta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áskorun á Sveppa,karifrid (Á youtube.) Textinn .

      Áskorun á Sveppa.Lag og ljóð Kári          Friðriksson.

Þú grínari mikli sem ekur um allt,       
sem útvarpar spaugi úr bílnum.
Ég læt þig nú vita að lánið er valt
og líklegar hefndir frá skrílnum.

Því fólk sem þú níðir í fýlu nú er,
þú ferð nokkuð oft yfir strikið.
Það óþverra grínsem þú gerðir,að mér
var gróft,og mér sárnaði mikið.

Ég frétti,þú lent hafir einelti í,
með útlit þit grínast og spikið.
Ég verð nú að segja,mér virðist af því
varla,þú lært hafir mikið.

Að grínast með feita og fatlaða er
sko "fyndni" af lakasta tagi.
Þitt lélega innræti alþjóð nú sér,
þú ert ekki Sveppi,í lagi.

Að ganga of langt,eiga grínarar til
en gáð´að mig skortir ei kraftinn.
Ég reiddist þér Sveppi og vegna þess vil
þér veglega gefa á kjaftinn.

Þú óþverrakjaftur sem áreittir mig
ég á þig í slag núna skora.
Í lokuðu búri ég lemja skal þig,
(en líklega munt´ekki þora.)

Klárað 22.1.2021. Kári Friðriksson.
Mannlíf.is fjallaði ágætlega um þetta og kom með dæmi um hvað þeir sögðu um mig á podkastinu. Einnig er texti neðan við myndbandið á youtube með þessum texta við lag eftir mig. 
Munið: "Engin skyldi skáldin styggja, skæð er þeirra hefnd."


Athugasemd við grein. Vantar áskorunina um að mæta í búrið.

Ég vek athygli á að ekki er nefnt vídeó á youtube, með áskorun á Sveppa um að mæta mér í "búrinu".
Þar er líka lag og ljóð samið og sungið af mér, síðasta erindið hljóðar svo:

Þú óþverrakjaftur sem áreittir mig,
ég á þig í slag núna skora.    Í lokuðu búri ég lemja skal þig,                          en líklega munt´ekki þora...                                   Þetta finnst á youtube sem     " karifrid,áskorun á Sveppa"          Kári Friðriksson.


mbl.is „Ákaflega ósmekkleg framkoma“ landsfrægra grínista
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

GEYSIR Í HAUKADAL. ENDURLÍFGUM HANN.

Geysir hætti að gjósa vegna þess að barmarnir hækkuðu sífellt vegna hveraútfellinga. Ráð við því er að taka t.d. metra ofan af börmum og þá mun þrýstingur minnka nóg til að hann fari aftur að gjósa og endurheimti forna frægð.Slíkt mundi auðvitað styrkja ferðaþjónustuna og efnahaginn. Vonandi eru margir mér sammála og kannski með betri sambönd en ég til að koma málinu áfram.....


Sá yðar sem syndlaus er,kasti fyrsta steininum. (Limrur.)

Úr glerhúsi grjóti menn kasta
þeir gróflega klæmast og lasta.
Já sumir þeir þvaðra
og setj´út á aðra,
nú segjum við barasta,BASTA!

Í réttlátri reiði,menn skamma
og rægja þá,sem voru að djamma.
Við finnum þá seka
og þá flesta skal REKA.
Hvort eruð þið betri? Spyr amma.....



 

 


LEIGUBÍLL EÐA FLUGRÚTA ? 4 í TAXA borga svipað eða minna. (6910665)

Ferðamenn á leið til útlanda ættu að bera saman verð á flugrútum og leigubílum. Það er jafnvel ÓDÝRARA að fara með taxa, ef fjórir eða fleiri ferðast saman. Sé farið frá BSÍ kostar 2950 í flugrútuna, en 3950 fyrir þá sem eru sóttir á valda staði nálægt miðbænum. Við verðið má bæta kostnaði við að komast á BSÍ sé maður lengra frá. 
BSR er með tilboð, 15000 kr. frá Reykjavík á völlinn og 15500 til baka. (Isavia skattur 500) Hreyfill er með 16000 króna tilboð. 
Auðvitað tekur lengri tíma að fara fyrst á BSÍ og svo í rútu heldur en að fá leigubílinn heim. Þeir sem bíða á stöðum sem fólk er tekið upp í nálægt miðbænum eru oft ekki öfundsverðir því að veðrið getur verið misjafnt.....
Látið ykkur líða vel, í leigubíl.

Kári Friðriksson, sími 6910665.


Næsta síða »

Um bloggið

Kári Friðriksson

Höfundur

Kári Friðriksson
Kári Friðriksson
Tónlistarmaður,tenorsöngvari,trúbadúr,kórstjóri og tónmenntakennari.Yrkir ljóð,semur lög og stundar kraftlyftingar til að slaka á.Giftur og á þrjú börn.
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband