Færsluflokkur: Menning og listir

" Mario Lanza, tenor tónleikar" Geir Ólafsson og Kári Friðriksson syngja.

Ég hef meira verið að syngja með gítar að vopni , íslensk þjóðlög og annað efni fyrir matargesti Fjörukrárinnar heldur en með píanóleikara síðari ár. Hef þó metnað til að syngja meira þannig og söng t.d. "Þrír tenorar" tónleika árið 2007 með bræðrunum Guðbjörnssonum og 7 einsöngstónleika árið 2009 með Nínu Margréti Grímsdóttur, sem einnig lék píanóverk .
Ég ER með hljómdisk næstum tilbúinn og syng auðvitað af og til í jarðarförum, afmælum og á árshátíðum eins og gengur.
NÚ vil ég bjóða upp á mjög flottan "tónlistarpakka" þar sem Mario Lanza er minnst með því að syngja eingöngu lög og óperuaríur sem hann söng .
Ég talaði við Geir Ólafsson, sem er þekktur fyrir að fara vel með dægurlög liðinna ára . Hann er einnig hinn ágætasti tenor, hefur jafnvel stundað nám hjá sjálfum Kristjáni Jóhannssyni. Hann sagðist syngja með mér, ef mér tækist að selja pakkann. Sennilega er Geir meira á heimavelli í dægurlögunum en ég, en ég mun þó syngja þau líka. Hef t.d. sett Be my love inn á youtube með mér. Það lag var eitt af þeim sem gerðu Mario Lanza að stórstjörnu og seldist í milljónum eintaka . Geir mun örugglega syngja Serenade úr óperettunni Stúdentaprinsinn og við syngum líka saman nokkur af lögunum í stíl "Tenorarnir þrír".
Líkleg lög auk fyrrnefndra eru t.d. O sole mio, La donna e mobile, Nessun dorma,Una furtiva lagrima og Recondita armonia......(Kannski, O Danny boy.)
Ég hef háleitar hugmyndir um að selja "pakkann" t.d. á veitingahús, þar sem fínn kvöldverður með svona skemmtiatriðum gæti gengið vikum saman.
Enginn vafi er á því að unnendur klassískskrar tónlistar og fólk í eldra kantinum vildi gjarnan fara á slíkt "Galakvöld" enda var Mario Lanza mjög vinsæll á sinni tíð. Þetta yrði mun ódýrari pakki heldur en stórsýningar eins og Abba sýningin. Hótel Ísland (Park inn) er efst á lista hjá mér, en allt niður í Iðnó kemur til greina. Þar hafa,þrátt fyrir smæð staðarins ,gengið lengi þematengdar sýningar og tónleikar.
Ég hef sent stærstu sumarhátíðum upplýsingar om "pakkann" en er ekki komin með neitt fast.....Þeir sem hafa áhuga geta haft samband við mig, (eða Geir)
ég hef netfang karifrid@hotmail.com Sími: 6910665
Virðingarfyllst, Kári Friðriksson, tenorsöngvari.

Íslenska Óperan. Til hamingju með Eldborgarsalinn !

Ágæta tónlistaráhugafólk.
Undirritaður hefur stundum gagnrýnt óperuna fyrir ýmislegt,bæði í blaðagreinum og bloggi.
Nú er mér ljúft of skylt að greina frá ánægju minni með þau vinnubrögð sem þar eru stunduð,þar sem nýlega hefur fjöldi íslenskra söngvara sungið "fyrirsöng" í Eldborgarsal Hörpu og einnig fréttist fyrir þó nokkru hvaða óperu stæði til að flytja á næstunni.
Það hafa allir söngvarar sem ég hef rætt við um þetta verið sáttir við þetta og vonandi verður þetta raunin í framtíðinni.Þá getur enginn talað um "pukur og leynimakk" eða "klíkuskap" eins og stundum hefur verið hvíslað um allt frá þeim dögum þegar Garðar og Ólöf Kolbrún réðu ríkjum.
Ég verð að taka fram að þrátt fyrir að ég hafi gagnrýnt stjórn Íslensku Óperunnar og óperustjórann Stefán Baldursson þá hefur hann sýnt kurteisi
í svörum sínum til mín eins og sæmir þroskuðum stjórnanda ,rökrætt málin og meira að segja sendi hann mér boð um prufusöng nú í desember.Takk fyrir það Stefán.
Auðvitað munu nokkrir tenorar koma til greina í hlutverk það sem ég vildi helst fá,Rodolfo.Það er tenorhlutverk þar sem helst þarf að geta sungið alla leið upp á háa C oftar en einu sinni (nema menn kjósi að lækka ) og auk þess þarf þó nokkurn raddþrótt og karlmennsku . Þó nokkur fjöldi tenora getur sungið "léttari" tenorhlutverk,án þess að henta í þetta. Svo er það einnig staðreynd að ennþá færri tenorar henta fyrir hlutverk Manricos í óperunni Il Trovatore,sem sumir telja að verði flutt í haust. Ég tel að ég sé einn af örfáum sem gæti sungið það,hef jafnvel sungið erfiðustu aríuna á tónleikum sem ég hélt haustið 2008 til styrktar Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur "15 Háa Céa tónleika" þar sem ég gaf aðgangseyrinn mæðrastyrksnefnd.
La boheme er nokkuð auðveldari fyrir tenorinn að sumu leiti,hafi hann góða hæð.Hann þarf ekki að vera eins kraftmikill,en syngja ljúft og rómantískt á köflum. Ég setti nú um daginn Che gelida manina og O soave fanciulla á youtube,fyrir mig og aðra til að sjá / heyra hvernig ég syngi þessa dagana. Hafði þá sungið fyrir í Eldborgarsalnum fimm dögum fyrr.Ég er "karifrid" á youtube,ef einhver vill finna upptökuna og hlusta. Allavega er þarna samanburður við þann,eða þá sem munu syngja Rodolfo.Ég kann bæði hlutverkin.
Þetta blogg er sett inn til að sýna að ég get allt eins hrósað og gagnrýnt.
Það er almenn ánægja með Íslensku Óperuna þessa dagana og vonandi verður svo áfram.(Vonandi fæ ég svo enn fleiri störf við söng út á bloggið.Reyndar hafa youtube upptökurnar gefið mér slatta af söngstörfum,mest þó Rósin.)
Virðingarfyllst, Kári Friðriksson,tenorsöngvari. karifrid@hotmail.com Sími: 5640665/ 6910665

Vonbrigði með Jonas Kaufmann.

Ég er tenorsöngvari og hef hlustað á tenora og þeirra söng árum saman. Það var með mikilli tilhlökkun sem ég fór á tónleikana með konu minni til að hlusta á heimsfrægan tenorsöngvara,sem syngur "hetjuhlutverk" í frægustu óperu og tónleikahúsum veraldar.Ég hef talsvert hlustað og horft á hann á youtube vefnum þar sem fjöldi sönglaga og aría með honum eru til sýnis.Almennt hefur mér fundist hann syngja margt vel og sumt virkilega "músíkalskt".Hann syngur gjarnan píanissimo og notar veika tóna oft virkilega fallega.Það er flott að geta gert þetta vel þegar það á við,en það er leiðinlegt þegar söngvarar nota veikan söng endalaust til að "spara sig" og taka helst ekki vel á því nema þeir neyðist til. Í sumum "kommentum" sem ég hef lesið á youtube hefur fólk haldið því fram að Kaufmann sé ekki með stóra rödd og heyrist illa í stærri húsum.Sumir gagnrýna tæknina (eða tæknileysið) og segja að hann verði fljótt "búinn". Ég hef ekki tekið mark á þessu fyrr en nú,hef verið ánægður með margt sem hann syngur,t.d. Ingemisco úr Requiem eftir Verdi.Fallegt piano og styrkleikabreytingar.Samt verð ég að segja að ég,sem sat á öðrum svölum ásamt konu minni og öðrum tenorsöngvara (sem heldur var ekki of sáttur við söng Kaufmanns) ég HEYRÐI ILLA í hetjutenornum.Ég sit nú við tölvuna,er að HLUSTA á ruv upptöku af tónleikunum.Þar heyrist MIKLU BETUR í söngvaranum,enda míkrafónar í grennd. Ég er ekki viss hvað veldur,kannski er Kaufmann bara með frekar litla rödd (þótt hann sé titlaður stórsöngvari).Kannski stóð hann OF AFTARLEGA,í raun dálítið inni í hljómsveitinni.Ég vona að þetta sé raunin,því það er hægt að laga það með því að láta söngvarann eða sólista með öðruvísi hljóðfæri standa framar.Ég er tilbúinn að mæta á æfingar hjá hljómsveitinni og gera með henni tilraunir um hvar söngvari ætti að standa til að það heyrist vel í honum. Kannski vantar bara reynslu hjá hljómsveitinni og fólki sem vinnur í kring um hana.Stjórnandinn stendur stutt frá sólistanum og veit ekki hvort hljómsveitin spilar of sterkt og drekkir honum.Einhver verður að sitja aftarlega í salnum og segja hvort allt heyrist vel.Ég allavega vonaðist til að heyra vel í söngvaranum og vonast til að stjórnandinn og allir í hljómsveitinni vilji það líka. Sumum finnst röddin í Kaufmann mjög falleg,öðrum ekki,en allavega hljómar hann ekki eins og það sem ég tengi við "tenorrödd".Talsvert baritonleg rödd,ekki mikið "ping" eða bjartur tenor hljómur OG mér fannst vanta kraft þar sem við átti...Hann hljómar mun betur í útvarpinu heldur en í mínu minni frá tónleikunum,svo að ég mundi verða hrifinn og halda að röddin sé "dökk og karlmannleg tenorrödd" Því miður heyrðist ekki þessi litur eða karlmannleiki þangað sem ég sat.Kannski ég verði að SLEPPA því að fara á tónleika og treysta á útvarpið... Ég vil beina því til söngvara sem munu syngja í Eldborginni að hugsa líka um fólkið sem situr aftan við miðju.Ef þið "sparið ykkur" svona mikið eins og Kaufmann gerði mun fólk sem situr þar ekki verða hrifið.Ég verð að segja það að mér fannst óþægilegt og "plebbalegt" hvað fólk klappaði mikið og jafnvel "stóð upp". Mér finnst að fólk eigi ekki að standa upp nema eitthvað sé FRÁBÆRT,sem þetta var EKKI,það sem ég heyrði. (Ég og tenorsöngvarinn sátum og létum ekki kúga okkur.)Ég verð að bæta því við að ég hef ALDREI áður farið á tónleika og fundist heimsfrægur söngvari EKKI vera betri "læv" heldur en á vídeói eða diski (plötu).Samuel Ramey,Paata Burchuladse,Jose Carreras (þegar hann var ungur) voru öll MIKLU betri í sal..... Tók líka eftir að Kaufmann söng ekki ú eða i á erfiðum stöðum. Í Toscu aríunni varð það "brona Floria" og Í Lehar varð það "wie wonderbar". Graal söngurinn : Sein Retter ,ekki Ritter. Auðvitað svindla sumir á texta,en yfirleitt ekki þeir bestu.Domingo og Pavarotti hef ég aldrei heyrt svindla á texta. NIÐURSTAÐA: Falleg og músíkölsk rödd,EF maður er nógu nálægt til að heyra,þrátt fyrir of mikið af veikum söng og "meintu kraftleysi /og /eða of sterkum leik hjá hljómsveit." Þarf að svindla á texta,ekki oft óhreinn og dregur ekki vel í þó ekki stærri sal en Eldborgin er.Betri í útvarpi og upptökum heldur en af nokkru færi í sal. "Míkrafónsöngvari?Það er spurningin " Vonandi vekja þessi skrif einhverja umræðu OG bjarga okkur frá frekari MISTÖKUM ef um þau hefur verið að ræða við uppstillingu söngvarans miðað við hljómsveit. Virðingarfyllst, Kári Friðriksson.

Mig langar að BÆTA VIÐ nú þremur árum seinna!  
Ég talaði um að illa hefði heyrst í Kaufmann, en hann var FYRSTI SÖNGVARI sem ég heyrði í Hörpu.
Því miður þá er hann sá sem heyrst hefur einna best í, svona eftir á... Ég SAT reyndar aftarlega á öðrum svölum, sem ég hef alltaf passað mig á að gera ekki síðan. Sú staðsetning kann að hafa skemmt fyrir, en trúlega líka það hvað hann stóð mikið inn í hljómsveitinni....
ÞVÍ MIÐUR þá eigum við ekki marga söngvara sem HEYRAST VEL í Eldborg...  Og þeir sem heyrast  þeir "SLÁ Í GEGN"  eins og t.d. Hallveig Rúnarsdóttir gerði.....
ÉG SKORA á óperustjóramnn og þá sem aðstoða hann að SITJA AFTARLEGA þegar þeir hlusta á einsöngvara sem eru að syngja fyrir því að þeir SEM SITJA AFTARLEGA vilja LÍKA HEYRA . 
"Comprimario" söngvarar verða LÍKA að heyrast.....
Virðingarfyllst, Kári Friðriksson.


mbl.is Konurnar tóku andköf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslenska Óperan. - Tenor áskorun!

Ágæta óperu-áhugafólk.

Ég er tenorsöngvari,og einn af þeim sem alltaf hafa verið "næstbestir" eða hafa ekki fengið að syngja hlutverk í Íslensku Óperunni.Reyndar hef ég kunnað nokkur tenorhlutverk utanað,og hef getað verið "til vara" ef óperustjóri hefði kært sig um.Ég hef ekki gert veður útaf því að Jóhann Friðgeir Valdimarsson hafi verið tekinn fram yfir mig til að syngja Cavaradossi eða Turiddu,þó að ég hafi kunnað hlutverkin,hann hentar ágætlega í þau.Enda hefur hann sungið ennþá dramatískari rullur eins og Canio.Einnig Radames og hann sagðist vera að fara að syngja Lohengrin í viðtali þegar hann var að kynna tónleika sem kölluðust "Tenorarnir þrír" og voru haldnir í Háskólabíói í janúar síðastliðnum. Ef fólk fer inn á www.operabase.com þá getur það flett upp óperusýningum og skoðað hverjir eru að syngja víða um heim.Það getur fundið tenora sem eru að syngja Radames,Canio eða jafnvel Lohengrin,(sem er Wagner ópera) og fundið út hvað þeir eru að syngja um þessar mundir. Einnig er hægt að skoða hvað þeir sem syngja Hertogann í óperunni Rigoletto eru að syngja. Fólk mun sjá að menn syngja EKKI á sama tíma hlutverk Hertogans og fyrrnefnd hlutverk.Þau eru mun þyngri og dramatískari en hlutverk Hertogans liggur hinsvegar mjög hátt og alls ekki allir tenorar ráða við það.                                                                                                      Þeir sem stjórna í Íslensku Óperunni virðast alls ekki vita þetta,sem flestir mínir söngkennarar hafa líka sagt um raddir,að þær þroskist frá léttum hlutverkum yfir í þyngri,en EKKI til baka.Mjög fáir ná t.d því að geta sungið Wagner hlutverk eins og Lohengrin.Þar þarf kraft og þol en ekki endilega mjög háa rödd. Jóhann Friðgeir hefur verið áberandi og sungið mikið hjá óperunni síðustu ár,hans rödd er nokkuð kraftmikil og með fallegan hljóm,en hann er hins vegar frekar þungur í hæðinni og er þekktur fyrir að LÆKKA sönglög og aríur.Einnig klifrar hann  stundum,eða rennir sér upp á hæstu tóna,með viðkomu á öðrum neðar og það finnst mér allavega vera galli.                                       Íslenska Óperan hefur því miður oft ekki gefið upp hvaða verk á að flytja fyrr en með mjög stuttum fyrirvara og þá oftast verið búið að ákveða hverjir syngja aðalhlutverk. Þetta er mjög þægilegt,ef fólk þar á bæ nennir ekki að hlusta á fullt af fólki sem vildi kannski "syngja fyrir" ef óperan gæfi upp prógramm ár fram í tíman eins og flest "alvöru óperuhús" gera.Talsverð óánægja er með þetta hjá sumum söngvurum,en fólk þorir ekki að kvarta af ótta við að "styggja" þá sem ráða.                       Ég frétti af tilviljun í maí, að það stæði til að setja upp óperuna Rigoletto eftir Verdi í vetur.Það er ein af mínum uppáhalds óperum og ég kann aðal tenorhlutverkið utanað,og ræð við hina háu legu.Það vill svo til að ég setti fyrir tæpu ári ALLAN TENORPARTINN úr Rigoletto inn á youtube undir nafninu "karifrid".Þetta er í nokkrum bútum og undirleikurinn er sinfoníuhljómsveit ítölsk,sem hefur gefið út og selt fullt af efni fyrir söngvara og hljóðfæraleikara.Rigoletto mínus Duca var það sem ég keypti,en einnig var til útgáfa án Rigoletto,án Gildu o.s.f.v.                                                                               Fyrir utan þetta efni hef ég sett fjölmörg sönglög og aríur á youtube,t.d. Che gelida manina,Di quella pira,Non piangere Liu,Nessun dorma,O paradiso,Lultima canzone,Malia,La serenata,O sole mio,Draumalandið,Rósin,og fleira.Sumt með eigin undirleik á gítar,sumt með píanóundirleik Árna Ísleifssonar ,en flest með karaoke sinfoníuundirleik.                                                                        Þessar upptökur eru gerðar með Samsung myndavél svo að hljómgæðin eru frekar slök.Samt heyrist að ég er tenor sem er með mikla og kraftmikla hæð.sem ekki þarf að lækka aríur nema síður sé.Hef ég t.d. gert nýja kadensu í lok aríunnar La donna e mobile,þar sem ég skrepp upp á Cís fyrir ofan Háa C. Einnig hef ég handskrifað O sole mio upp í As dúr,enda svo í "Corelli stíl" og fer upp á Háa C á síðustu nótu.Ég nota einnig oft O sole mio sem síðasta lag á Fjörukránni,þar sem ég syng fyrir matargesti nokkur kvöld í mánuði.Leik þá sjálfur undir á gítar.                                                          MISTÖK HJÁ ÓPERUSTJÓRANUM!Þegar ég frétti að stjórn óperunnar,eða óperustjórinn Stefán Baldursson öllu heldur ætlaði að láta Jóhann Friðgeir syngja hlutverk,sem ég allavega, tel að henti honum engan vegin og geti jafnvel skemmt röddina í honum,ákvað ég að láta til skarar skríða.Reyna að berjast fyrir því að fá að syngja Hertogann,sem ég tel henta mér mun betur en Jóhanni.Skoraði ég á óperustjórann að bera okkur saman,helst á tónleikapalli í stóru húsi.(Háskólabíói).Þar mundi heyrast að ég væri með miklu betri hæð og gæti sungið allt hlutverkið án þess að lækka neitt.(Eða renna mér og klifra upp á tóna.)Einnig er Íslenska Óperan að fara að komast í miklu stærra húsnæði en Gamla Bíó,svo að raddir sem hljóma frekar litlar fyrir þann sal munu ekki duga í Nýja Tónlistarhúsinu.(Þarna er ég ekki að tala um Jóhann Friðgeir). Af því að Stefán óperustjóri hefur ekki svarað (nema einu sinni) pósti frá mér,fór ég inn á heimasíðu óperunnar og fann netföng allra sem sitja þar í stjórn.Þar á meðal eru Diddú og Júlíus Vífill sem ættu að vita eitthvað um lögmál sönglistarinnar.Söngvari sem er búinn að syngja fullt af þungum dramatískum hlutverkum og jafnvel farinn að hanga örlítið neðan í tóni eins og má heyra í aríunni Celeste Aida,sem er á youtube.com með Jóhanni  (frasinn "Celeste Aida" er einmitt mjög óhreinn.) Einnig má heyra í (annars ágætri upptöku) Recondita armonia að Jóhann hefur lært vel þá lista að "svindla á hæðinni" með því að fara snemma niður af háum tónum.Hlustið t.d. á  e te-e bel ta-a  þar sem farið er niður á næsta tón of snemma.Það eru ekki allir sem átta sig á þessu nema að vita um það.Þarna hljómar Jóhann glettilega vel,nema maður hafi ekki smekk fyrir svona svindli.     Vill stjórn óperunnar að Stefán geri mistök í að ráða í hlutverk og láti "allt að því Wagner tenor" syngja hálýrískt hlutverk,sem gæti hugsanlega,ef illa fer bundið enda á söngferil hans.                        ENGINN úr stjórninni,og ekki heldur óperustjórinn svaraði E-mailnum frá mér,sem fjallaði um þetta efni.Þá ákvað ég að senda þeim framhaldsbréf,sendi einnig Jóhanni sjálfum áskorun um að mæta mér á tónlekum,helst í Háskólabíói,svo sjá mætti hver hentaði betur í hlutverk Hertogans,og í raun til að SANNA að hann GETI sungið hlutverkið. Ég "meðfram sendi" þetta á fullt af frétta og fjölmiðlamönnum.  ENN ekkert svar. Engin fréttastofnun nema Bylgjan sýndi þessu áhuga og mætti þó teljast FRÉTTNÆMT að skorað sé á einn frægasta tenor landsins og einnig að Íslenska Óperan sé loksins gagnrýnd. Það er ekki eins og sé verið a ráðast á einhvern aumingja að skora á Jóhann að "sanna sig " eða keppa um hlutverkið við mun ófrægari tenor.Hann verður auðvitað að syngja þetta í vetur,en þá hefur hann ekki (hinn hættulega?) samanburð við Háa Cés tenor eins og mig.          Bylgjan tók sem sé viðtal í morgunþætti og Heimir sagði eitthvað á þá leið við mig að hann vildi ekki taka þátt í að þagga þetta niður.                                                                                                      Ég fékk nokkur viðbrögð við þessu,EKKI frá Jóhanni eða Íslensku Óperunni,en sumir sögðu að nú mundi ég örugglega ALDREI fá að syngja í Íslensku Óperunni.Þessu yrði ekki gleymt.Ég sagði að kannski væri það rétt,um ÞENNAN óperustjóra.Ekki nennti ég að þegja um svona "misráðningu" þrátt fyrir að einhverjir gætu móðgast.RÖKIN hjá mér eru góð.Ég frétti að Hamborgaróperan (minnir mig) vildi ráða Jóhann Friðgeir til sín.Þar mundu þeir örugglega ekki láta hann syngja í Rigoletto.    Staðreyndin er sú að söngvarar hafa eyðilagt raddir sínar á að syngja vitlaus hlutverk,sumir til frambúðar.Fræg er saga af Mario Del Monaco,sem er einn frægasti dramatíski tenor allra tíma.Hann lenti hjá kennara í Rómar óperustúdióinu sem lét hann syngja allt of "létt" hlutverk svo að hann,sem var búinn að byggja upp mjög öfluga rödd lenti í miklum raddvandamálum.Loks fór hann til gamla kennarans sem gat leiðrétt vandann. Vonandi lendir Jóhann ekki í því sama,ef hann syngur Hertogann,samt er það dálítil áhætta,og hann ætti að hugsa út í það að EF hann blómstrar sem Wagner tenor eru peningamálin á uppleið hjá honum.                                                                      Þó að ég segi frá því að Jóhann sé að lækka lög og aríur er það ekki til að gera lítið úr honum,röddin hans er svona,en samt finnst flestum hann flottur.Ég get nefnt aðra tenora sem lækka lög,t.d. Stefán Helga Stefánsson,hann á ekki rödd upp fyrir A,en er með eina fallegustu tenorrödd á Íslandi.Ég var einmitt að spjalla við hann um daginn (m.a. um Jóhann),en sagði svo við hann að mér þætti hann með mjög fallega rödd og teldi að hann ætti að æfa Mozart aríur og syngja fyrir hjá óperunni.                                                                                                                                            Algengt er reyndar að Háa Cés aríurnar Di quella pira og Che gelida manina séu lækkaðar um hálfan tón,þótt Ferraro kennari minn á Ítalíu segði mér að ítalir lækkuðu helst ekki.Þegar La Boheme var flutt í Þjóðleikhúsinu var einhver rígur á milli "Garðars manna" og "Kristjáns manna",Garðar átti víst að taka lægri útgáfuna en Kristján syngja upp á C.Ég sá því miður ekki þær sýningar. Garðar söng reyndar Hertogann á nokkrum sýningum þegar Íslenska Óperan flutti Rigoletto 1990.Þá hafði hann sungið hlutverk Canio um vorið en einnig Il Trovatore og Radames áður.Hann var þá slétt fimmtugur og var ekki að blómstra eins sem Hertogi og í hinum rullunum.Hann var orðinn óþarflega þungur og dramatískur fyrir Hertogann.Ég var að vinna á textavél þá,og sá allar sýningarnar.Að lokum fékk óperan tenora frá útlöndum til að syngja seinni sýningarnar.                                                           Þegar kom í ljós að allir hjá Íslensku Óperunni ætluðu að þumbast við og þegja og reyna að þagga þetta allt niður,og enginn viðbrögð komu frá þeim og enginn frétta né blaðamaður hafði heldur áhuga á að fjalla um málið þá ákvað ég að skrifa sjálfur grein,skammast ögn út í óperustjórann og stjórn óperunnar og SKORA opinberlega á Jóhann Friðgeir að syngja með mér á tónleikum.Við mundum syngja næstum allt hlutverk Hertogans og svo mundi koma í ljós hvort hann ráði við hlutverkið og einnig hvort ég sé ekki betur hæfur,með mína öruggu hæð,að syngja heldur en hann. Ég skrifaði grein og sendi fyrst í Fréttablaðið,eftir ítrekun kom loks svar um að þeir vildu ekki birta greinina.Mér fannst það ekki mikil lýðræðisást og frekar lélegt að hjálpa ráðandi tónlistarvaldastétt að sleppa við gagnrýni og auðvitað Jóhanni að sleppa við svo víðlesna áskorun sem þarna hefði orðið.Fréttablaðið er auðvitað margfrægt fyrir að hafa á einkar hlutdrægan hátt aðstoðað eigendur sína í gegnum árin. "Baugsmiðill" og lifir á auglýsingum ,svo að kannski var nóg að Íslenska Óperan og hugsanlega einhver vinveitt stórfyrirtæki hótuðu að auglýsa ekki nema blaðið tæki þátt í að þagga mig niður.  Allavega gerði ég stöku um þá,í pirringi yfir að minn lýðræðislegi réttur til að "rífa kjaft" var ekki virtur .    Löngum þeir guma af lýðræðisást-  ég leyfi mér bara að segja,-                                     að Fréttablaðsmönnum er skömminni skást- að skammast sín bara og þegja. Nú hef ég sent Morgunnblaðinu grein um þetta mál titlaða "Íslenska Óperan.-Tenor áskorun!  Vonandi sjá þeir fréttagildið í þessu. EF fólki hjá Íslensku Óperunni finnst ég lélegur söngvari og alls ekki hæfur til að syngja aðalhlutverk af neinu tagi þá ætti nú ekki að vera hættulegt að svara svona gagnrýni með því að láta okku Jóhann syngja báða á sama stað aríur úr Rigoletto.                       Óperustjórinn fékk bréf frá mér haustið 2008 þar sem ég sagðist geta verið til vara þar sem ég kynni Turiddu utanað,ef annar væri veikur,Kristján eða Jóhann.Sagði ég að ég væri í námi hjá David Bartleet,sem margir íslendingar hafa skroppið til í tíma,m.a. Garðar Thor,Gunnar Guðbjörns og Júlíus Vífill.Sagði David mér þá að hann þekkti "engan tenor á Íslandi sem gæti keppt við mig í hæðinni." Var ég all ánægður með það og sagði Stefáni að ég vildi gjarnan syngja á tónleikum með tenorum sem væru að syngja við óperuna og HELST að þemað væri Háa C. Ekki fékk ég svar við þessari áskorun,en hann notaði þessa ágætu hugmynd um tenoratónleika og skömmu síðar sungu fjórir tenorar á tónleikum í Gamla Bíói. Það var kannski ekki fallega gert að skora á tenora að syngja á tónleikum með mér,þar sem þeir yrðu að syngja eitthvað sem færi upp á Háa C. Það er í raun bara Garðar Thor sem ég hef heyrt syngja Háa C (og jafnvel hærra) síðari ár. Flottasta Céið heyrði ég fyrir mörgum árum hjá Ólafi Árna Bjarnasyni,hann var þekktur fyrir góða hæð.                                 Þegar ekki tókst að fá að syngja hjá óperunni á tónleikum með öðrum tenorum "samkeppnis-tónleikum" þá ákvað ég að syngja bara einsöngstónleika. Í nóvember 2008 hélt ég styrktartónleika fyrir Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur,"15 Háa Céa tónleika" og gaf allan aðgangseyrinn.Árið eftir fór ég um landið,söng 7 tónleika þar sem gjarnan var skroppið upp á Háa C og gaf 1/3 aðgangseyris til góðgerðarmála. ÞVÍ MIÐUR voru fjölmiðlar ansi lokaðir fyrir umfjöllun um þessa tónleika,þrátt fyrir glæsilega efnisskrá og að góð málefni fengju hlut.Mega þeir hafa skömm fyrir.Það er því miður þannig að SAMA fólkið er aftur og aftur í fréttunum en aðrir komast ekki að.                                     Þetta er að verða dálítið langt blogg,en ég gæti nú átt eftir að bæta við seinna. Sumir segja við mig að ég ætti að fá mér betri græjur til að taka upp það sem ég er að setja á www.youtube.com  þar sem ég er með slatta af tónlist.Ég segi að það geri ég þegar ég á meiri pening og kreppunni linnir.Ég er samt alltaf að fá eitt og eitt "job" út á það. Ég kann auðvitað slatta af íslenskum lögum sem ég get sungið á skemmtunum t.d. Rósin,Draumalandið,Hamraborgin,Draumur hjarðsveinsins,Þú eina hjartans yndið mitt,Í fjarlægð o.f.l.   Samt syng ég oftast La donna e mobile,O sole mio,Be my love,Torna a Surriento og Nessun dorma.                                                                                          Einhver spurði mig í sambandi við þetta hverjir kæmu til greina ef Jóhann bakkaði út og hætti við að syngja Hertogann.Ég sagði auðvitað að ég kæmi til greina þar sem ég kann hlutverkið,hef kraft og hæð fyrir það og Garðar Thor og Gissur Páll væru með talsvert minni rödd heldur en ég,þó að þeir væri meiri karakterar sem lýrískir eða leggero tenorar heldur en Jóhann.Ef ég á að segja mína meiningu um þá þrjá,Jóhann Friðgeir,Garðar Thor og Gissur Pál þá er það eitthvað á þá leið að Jóhann er með stærstu og hljómmestu röddina þótt hann vanti meiri hæð.Garðar Thor hefur hæð,er svolítið klemmdur á köflum og röddin varla nógu stór og karlmannleg fyrir Hertogan, hann er reyndar mesta "krúttið" á sviði.Gissur Páll er með tæknilega bestu röddina,hún er ekki stór en maður er ekki að heyra galla í söngnum sem maður heyrir hjá hinum,þegar maður hefur hlustað svo mikið sem ég.Hef reyndar ekki heyrt hann syngja hærra en upp á Bb,svo ég veit ekki hvort hann getur sungið La donna e mobile af glæsibrag,eða hvort hann tekur Háa Desið í dúettinum.Hef heyrt hann syngja Ingemisco virkilega fallega,þó ég sé  örugglega að syngja talsvert stærri Bb þar en hann.  Mér finnst auðvitað að best sé að heyra alla í sama sal,helst stórum vegna komandi flutnings óperunnar í nýtt og mun stærra húsnæði.Vonandi verða þar fluttar óperur eins og Il trovatore og Un ballo,(sem ég kann báðar) og kannski Turandot.                                                                               Við þá sem eru óánægðir með það að ég sé að gera þessi læti,skora á Jóhann o.s.f.v. þá segi ég:   Fólk heyrir ekki hvað ég er orðinn góður nema "læv".Upptökurnar eru ekki að sýna mitt besta,ég er miklu betri í sal. Stórfyrirtæki sem vilja spennandi atriði með smá "samkeppni" á árshátíðarnar sínar geta pantað okkur Jóhann Friðgeir og beðið um lög eins og O sole mio (sem hann syngur í F dúr en ég í As dúr,einum og hálfurm tón hærra.)La donna e mobile,Nessun dorma sem hann syngur lækkað en ég ekki. Auðvitað má einnig panta einhvern hinna til samanburðar.                                              Íslenska Óperan á ekki að vera klíka heldur opin fyrir nýjum röddum sem vilja keppa við þær sem fyrir eru. EKKI laumupúkast með hvað á að gera á næstunni.Fólk vill vita hvað á að flytja helst meira en ár fram í tíman.    LISTAMENN eins og söngvarar verða alltaf að vera að SANNA SIG.  Það mun ekki auka virðingu annara fyrir manni að svara ekki gagnrýni,svara ekki bréfum og netpósti og þykjast vera yfir það hafinn að mæta áskorunum annara.  Fullt af fólki veit nú þegar um þessa TENOR-ÁSKORUN  og það kemur bara illa út fyrir alla sem hafa reynt að þegja og snúa upp á sig.   Þó nokkuð margir hafa heyrt mig syngja í gegnum árin bæði á tónleikum,á Fjörukránni,þar syng ég mest þjóðlega tónlist en reyni einnig að halda uppi "brekkustemmingu" fyrir hópa sem þannig eru stemmdir.Slatti af fólki hefur einnig séð mig á www.youtube.com (Hátt í 30 þúsund síðast þegar ég gáði.)      Þó að sumum finnist ég kannski vera klikkaður að ráðast svona á "kerfið" þá dást aðrir að mér fyrir hugrekkið og segjast vona að þetta muni verða til að betri tímar renni upp hjá Íslensku Óperunni og hún verði ekki umtöluð fyrir klíkuskap og leynimakk.  Ég vona allavega að einhverjir lesi þetta blogg,og auðvitað greinina í Mogganum þegar (ef) hún birtist.  Það er ekki ætlun mín að særa neinn með þessum skrifum,ég tel þau vel rökstudd og ef einhver hefur eitthvað að segja um að ég sé "ekki í sama klassa" og sumir aðrir söngvara þá segi ég bara. Syngjum saman,dæmum eftir frammistöðu á sama tónleikapalli,heiðarlega samkeppni en ekki klíku.           

                      Virðingarfyllst, Kári Friðriksson tónlistarmaður. Reyjavíkurvegi 36, 220 Hafnarfirði.      

                       Sími: 6910665   karifrid@hotmail.com      (Á youtube , karifrid.)


Áramótakveðja.

Óska vil ég árs og friðar,

öllum sem ég þekki,hér.

Elfa tímans áfram niðar.

Íslands framtíð byggjum Vér!

         Kveðja,Kári Friðriksson.


Ekki nógu góður söngvari!!

Var að skoða  á youtube lögin sem ég hef sett inn,og horfði á La donna e mobile sem er tenor aría sem flestir þekkja.Þarna var tekin upp síðasta æfing fyrir tónleika Gerðubergskórsins í vor,Árni Ísleifsson lék undir.Þetta er arían sem ég söng í prufusöng í Íslensku óperunni nokkrum mánuðum áður.Var að syngja fyrir inn í óperukórinn,(fyrst ég fæ ekki hlutverk). Ég komst ekki inn í kórinn, sem segir mér að allir tenorarnir sem voru teknir þar fram yfir mig hljóti að vera betri.Í alvöru,þá er ég ósáttur við þetta og tel að gæði eigi að ráða ,ég sé allavega nokkuð góður tenorsöngvari og fyrirtæki sem er styrkt af almannafé eigi ekki að vera með klíkuskap.Þetta er eitt af fáum borguðum áhugamálum sem hægt er að stunda.Ég hef sungið í þremur óperuuppfærslum,í kór og staðið mig vel. Ég hélt 7 tónleika í sumar og auðvitað söng ég þessa aríu á þeim.La donna e mobile og O sole mio eru eitthvað sem ég syng alltaf ef ég kem fram á árshátíðum o.þ.h.  Ég er undir nafninu karifrid á youtube og hef sett þar slatta af lögum og aríum,flest tekið upp á venjulega myndavél svo að hljómgæðin eru eftir því.Samt hef ég fengið þó nokkuð af söngtilboðum út á þetta. Ég hef líka verið að stríða "stóru strákunum" með því að tengja upptökur af mér við þeirra.T.d. Mamma quel vino við Kristján Jóhannsson og Nessun dorma við Garðar Thor Cortes,(þeir eru með vídeó af aríunum á youtube.)  Jæja,þetta losar um smá pirring og ég bið alla vel að lifa.Í lokin vil ég segja að nú spái ég því að krónan fari að hækka,sjá frétt um M.P. banka o.f.l. jákvætt. KRÓNUNA UPP!!

                            Kári Friðriksson.


« Fyrri síða

Um bloggið

Kári Friðriksson

Höfundur

Kári Friðriksson
Kári Friðriksson
Tónlistarmaður,tenorsöngvari,trúbadúr,kórstjóri og tónmenntakennari.Yrkir ljóð,semur lög og stundar kraftlyftingar til að slaka á.Giftur og á þrjú börn.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband