Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
30.5.2024 | 21:54
Ég ákvað loks að kjósa Höllu Hrund,(fyrir Ísland.)
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.8.2021 | 04:16
Kína gefur tvo milljarða af bóluefni. FRÁBÆRT.
Sumar vestrænar þjóðir ,líka við, hafa pantað allt of mikið af bóluefni,þannig að fátækari þjóðir fá ekkert. (Kanadamenn keyptu þrisvar sinnum meira en mannfjöldinn er.)
KÍNVERJAR KOMA HÉR BEST FRAM.
(Við megum skammast okkar.)
Kína gefur tvo milljarða bóluefnaskammta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 04:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.12.2018 | 14:10
Sá yðar sem syndlaus er,kasti fyrsta steininum. (Limrur.)
Úr glerhúsi grjóti menn kasta
þeir gróflega klæmast og lasta.
Já sumir þeir þvaðra
og setj´út á aðra,
nú segjum við barasta,BASTA!
Í réttlátri reiði,menn skamma
og rægja þá,sem voru að djamma.
Við finnum þá seka
og þá flesta skal REKA.
Hvort eruð þið betri? Spyr amma.....
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ágætu lesendur.
Ég vil bara nota þessa fyrirsögn til að beina ykkur að bloggum um einelti og brot á stjórnsýslulögum sem ég hef sett inn . Lögfræðingur og starfsmenn K.Í. hefðu hugsanlega getað stöðvað þetta snemma, með því að krefjast þess, fyrir mína hönd, að farið væri eftir stjórnsýslulögum, m.a. um andmælarétt.....
Sorglegt hvað margir bera lotla virðingu fyrir lögum, og hafa litla réttlætiskennd.
Ég og mín fjölskylda höfum glímt við fjárhagsvanda árum saman, en Erla Guðjónsdóttir fyrrum skólastjóri Öldutúnsskóla lét sér sæma, að brjóta samning og stjórnsýslulög, til að hefna sín á mér fyrir að hafa kært hana fyrir "hótanastjórnun og slæma framkomu".
Fréttablaðið og Dagblaðið auk pressunnar, meinuðu mér að skrifa grein sem upplýsti þjóðina um framkomu og innræti Erlu, og þeirra annara sem hafa látið hana komast upp með eineltið...Erla hótaði mér "áminningu" vegna hlutar sem még var saklaus af, og baðst svo ekki afsökunar á hótuninni, þegar í ljós kom að ég hafði fyrir löngu klárað verkefnið sem hún skammaði mig fyrir að hafa vanrækt...
Vonandi fær bloggið einhverja lesningu, það má ekki láta fólk komast upp með svona framkomu.
Virðingarfyllst, Kári Friðriksson, atvinnulaus tónmenntakennari af völdum eineltis og hefndarfýsnar...
Stjórnmál og samfélag | Breytt 8.8.2016 kl. 09:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ágætu lesendur.
Þessi skrif eru í tengslum við grein um einelti og brot á samningum og stjórnsýslulögum, sem ég setti á bloggið fyrir nokkru.
Skólastjórarnir Lars og Valdimar ganga í lið með þeim sem stunda einelti, þrátt fyrir að vita að til sé starfslokasamningur þar sem segir að "engin eftirmál skuli verða af þessu máli" sem var, kæra mín til stjórnenda Hafnarfjarðar vegna framkomu Erlu Guðjónsdóttur, og að þetta sé hefnd .
Munu þeir gera svipað ef einhver lendir í deilum við þá. Rægja þá árum saman og koma í veg fyrir að þeir/þær fái vinnu...Finnst þeim það eðlilegt ?
Báðir hafa frekar ENGA TÓNMENNTAKENNSLU frekar en að ráða mig...
Eftir að upp komst um að fræðslustjóri , Magnús Baldursson,að tilhlutan Erlu hafi mælt gegn því að ég fengi vinnu í Hafnarfirði (og sennilega mun víðar,)"vegna samskipta" segja nú skólastjórar að ég sé ekki ráðinn " vegna viðhorfa til umhverfisins".
Valdimar átti kannski erfitt, þar sem Erla starfaði áfram við kennslu eftir að hann tók við, (var sem sé partur af "umhverfinu"). Þetta sagði hann ekki hreint út, en ég skoðaði kennaralistann á netinu. Imsland hefði hins vegar ,hefði hann réttlætiskennd, getað ráðið mig, en er greinilega huglaus, og fer auðveldu leiðina, að ganga í lið með þeim sem standa fyrir eineltinu.
Hef alltaf unnið ýmis störf fyrir nám,einnig sem aukastörf, t.d. sem söngvari, skemmtikraftur og kórstjóri með kennslu. Hafði þá ágætar tekjur, og "aukastörfin" gefa til kynna að ég hafi einhverja hæfileika sem tónlistarmaður. Ekki hefur Erla nefnt eitt einasta atriði um það sem væri að hjá mér, sagt "að ýmislegt væri að" en ekki er gott að andmæla svo óljósri gagnrýni... Sannleikurinn er að hún er bara reið vegna kærunnar. HÚN ER AUÐVITAÐ VANHÆF til að fjalla af SANNGIRNI, um mig sem kennara. Þetta ættu nú allir að hafa í huga. MAGNÚS BALDURSSON átti auðvitað að STOPPA HANA en ekki hjálpa.Nú er hann búinn að eyðileggja orðstý sinn sem stjórnandi, brjótandi starfslokasamning og stjórnsýslulög. Erla hlýtur að hafa mjög góð tök á honum.....
Hef unnið ýmis störf eða verið atvinnulaus eftir að missa vinnu þegar kreppan skall á og mikill niðurskurður varð.MJÖG MIKIÐ TEKJUTAP.....
Já, ÉG KÆRÐI ERLU GUÐJÓNSDÓTTUR skólastjóra fyrir "yfirgang og hótanastjórnun" sem endaði með "sátt" um það að ég fékk laun í heilt ár, enda hafði Erla MJÖG SLÆMT ORÐ Á SÉR og FJÖLDI KENNARA hafði HÆTT í Öldutúnsskóla vegna framkomu og stjórnunarstíls hennar. Hún náði sér niðri á mér, með því að nota sambönd sín á Fræðsluskrifstofunni þar sem húnn vann áður, og einnig sem skólastjóri í skólastjórafélaginu. Einnig er hún framarlega í Sjálfstæðisflokknum og stjórnendur í Garðabæ og Kópavogi hafa brotið stjórnsýslulög til að verða að vilja hennar.(Nefni t.d. Kársnesskóla)
Hún skrifaði m.a. "minnisblað" þar sem hún heldur því fram að sálfræðingurinn Einar Ingi, sem var fenginn til að hjálpa mér til að bæta agastjórnun, AÐ MÍNU FRUMKVÆÐI, hafi reynt án árangurs að leiðbeina mér um ýmislegt annað, en ég EKKI BÆTT MIG NEITT! ÞETTA ER HAUGALYGI, og ótrúlega leggst manneskjan lágt til að hefna sín á mér fyrir að klaga hana... Einar Ingi ER EKKI kennaramenntaður, né með menntun í tónlist, hefur sem sagt ekki vit á hvernig tónmennt skal kennd,hins vegar hjálpaði hann mér með agamálin,og hafa þau gengið betur eftir að ég gerði eins og hann ráðlagði mér. Hann sagði að "mig skorti meiri herforingjabrag" og "yrði alltaf að standa við hótanir um að klaga í foreldra".
FRÆÐSLUSKRIFSTOFA hefur (vegna áhrifa ERLU) komið ítrekað í veg fyrir að ég fengi vinnu, en ég uppgötvaði það fyrst í fyrra, þegar ég sótti um í Víðistaðaskóla. Þar brýtur fræðslustjóri (og hanns fólk) samning sem gerður var um starfslok mín, þar sem segir að "engin eftirmál skuli af þessu máli"..... Ég hef sótt um, án árangurs vinnu í Hraunvallaskóla, Engidalsskóla/ Víðstaðaskóla. Hvaleyrarskóla og Áslandsskóla. Auk þess Flataskóla og Kársnesskóla, og þar var ég spurður út á ár mín í Öldutúnsskóla, (sem ég hafði ekki nefnt í umsókn) og mér virtist sem skólastjórar þar hefðu myndað sér fyrirfram neikvæða skoðun á mér sem kennara. (Skólastjórar á þeim svæðum hitta skólastjóra úr Hafnarfirði á fundum, og greinilegt að Erla hefur notað áhrif sín.)
Ég SKORA á þá sem þetta lesa að FARA eftir stjórnsýslulögum og útiloka ekki kennara, sem ALDREI hefur fengið áminningu á sínum rúmlega tuttugu ára ferli, og illa innrætt persóna hefur notað aðstöðu sína til að sverta. ÞEIR SEM ÞEKKJA TIL Í HAFNARFIRÐI VITA AÐ ERLA GUÐJÓNSDÓTTIR FÆLDI FJÖLDA MANNS ÚR ÖLDUTÚNSSKÓLA MEÐ FRAMKOMU SINNI.
Annars bendi ég á bloggið um "Einelti í Hafnarfirði,þar sem fjallað er um þetta talsvert betur...
Mér finnst leiðinlegt hvað sú grein fékk lítinn lestur. Kannski er lítill áhugi á einelti ?
Núverandi bæjarstjóri, Haraldur Líndal Haraldsson,sá ENGA ÁSTÆÐU til að gera neitt, þegar ég kvartaði yfir brotum á starfslokasamningnum . Annað, en Lúðvík Geirsson, sem var bæjarstjóri þegar samningurinn var gerður.
Brátt koma kosningar, og ég mun kannski vekja athygli á þessu enn frekar þá.
Vonandi lesa menn þetta, og hina greinina, þar sem aðkoma / aðkomuleysi K.Í. er tíundað.....Skrifa sjálfsagt meira um þetta seinna...
Virðingarfyllst, Kári Friðriksson.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.2.2016 | 22:04
Einelti í Hafnarfirði og margir að brjóta stjórnsýslulög.
"Varðhundar valdsins" kom mér í hug, þegar ég hafði ekki fengið að birta grein í Fréttablaðinu,D.V. eða Pressunni. Ég kvartaði þar yfir EINELTI Erlu Guðjónsdóttur skólastjóra Öldutúnsskóla,sem ég kærði fyrir bæjarstjórn og fræðslustjóra fyrir nokkrum árum. Nýlega komst ég að því að hún hefur, með aðstoð fyrrvarandi samstarfsmanna á Fræðsluskrifstofu Hafnarfjarðar, komið í veg fyrir að ég fengi vinnu við tónmenntakennslu í þó nokkrum skólum á "áhrifasvæði hennar" sem skólastjóra og sjálfstæðiskonu.
Magnús Baldursson fræðslustjóri og hún,eru að brjóta samning sem bærinn gerði við mig, auk þess að brjóta stjórnsýslulög og almennar siðgæðisreglur. Ég set greinina SEM EKKI FÉKKST BIRT hér fyrir neðan, og vona að Morgunnblaðið fari ekki sömu leið og hin stóru blöðin og "þaggi niður óþægilega gagnrýni á fjölda manns."
Virðingarfyllst, Kári Friðriksson, atvinnulaus tónmenntakennari.
Einelti og samningsbrot Erlu Guðjónsdóttur skólastjóra.
Ég reyni að hafa þessa grein ekki langa, þó mig langi til að segja margt.
Ég vann í Öldutúnsskóla í 7 ár, áður en ég kærði Erlu skólastjóra
fyrir slæma framkomu og hótanastjórnun. Hún var þá á sínu öðru ári sem
skólastjóri og hreint ekki vinsæl sem slík, ef satt skal segja. Alls hættu um
tveir þriðju kennara þessi tvö fyrstu ár, og þar af sumir vegna óánægju með
framkomu Erlu. Ég hafði heyrt ýmsar sögur, án þess að lenda í henni
sjálfur,nema með kjánalegar aðfinnslur um að börnin kæmu snarvitlaus úr
tíma hjá mér, og væru til vandræða í næsta tíma á eftir.
Ég sagðist eiga nóg með að hafa aga í mínum tímum, og gæti ekki borið
ábyrgð á næsta tíma líka. Þegar við ræddum þetta betur, kom í ljós að sumum
fannst börnin hávaðasamari en venjulega eftir að hafa verið í tónmennt. Ég
reyndi að útskýra að það væri eðlilegt þar sem ég léti börnin gera söngæfingar
sem styrktu og stækkuðu röddina, og þau væru kannski búin að syngja
hástöfum mörg lög, áður en þau færu í næsta tíma og þá væri röddin mun
hávaðasamari í dálítinn tíma á eftir. Ég held að flestir muni skilja þetta.
Ástæðan til að ég kærði Erlu var atvik, þar sem hún hótaði mér áminningu
(saklausum) fyrir að hafa ekki sett kennsluáætlun inn á sameiginlegt svæði.
Ég sagðist hafa gert það fyrir c.a. þremur mánuðum.
Þarna voru báðir yfirkennararnir staddir,María og Guðmundur Ingi. Hann fór
og náði í þetta af netinu eins og skot. Ekki baðst Erla afsökunar á að hafa
hótað mér svo alvarlegum hlut, sem áminningu. Svona framkoma varð
einmitt til þess að ýmsir ágætir kennarar hættu.
Ég sendi kæru til bæjarstjórnar,starfsmannastjóra og fræðslustjóra og var vel
tekið, enda var vitað að margir höfðu hætt, eða voru að hætta þá um vorið,
vegna framkomu Erlu.
Á fundi, var rætt um þessi mál og ég m.a. spurður hvort ég treysti mér
til að vinna áfram undir stjórn Erlu. Ég sagðist mundu reyna það, annars
tapaði ég talsverðu við það að færa mig á milli skóla, vegna breytinga á samn-
ingum, þar sem kennsluafsláttur tónmenntakennara var seldur fyrir smá
launahækkun fyrir alla....
Í stuttu máli var mér boðinn starfslokasamningur með fullum launum í eitt
ár, (til að bjarga mér, og Erlu frá að vinna saman). Ólafur Loftsson hjá K.Í.
var himinlifandi með samninginn. Sagði að annars mundi Erla finna leið
til að losna við mig. Skipulagsbreytingar væru oftast notaðar .
Í starfslokasamningnum er ákvæði um að engin eftirmál skuli verða af
þessu . Það atriði hefur Erla, með hjálp Fræðsluskrifsstofu marg-brotið
með því að rægja mig . Hún hefur gefið óumbeðin meðmæli sem hafa
komið í veg fyrir að ég fengi vinnu sem kennari árum saman og í mörgum
grunnskólum. Erla starfaði árum saman á fræðsluskrifstofunni áður en hún
var fengin til að koma hlutunum í lag í Öldutúnsskóla.
Ég komst loks að því í fyrra að Erla og fræðsluskrifstofan stóðu á bak við það
að ég fengi ekki vinnu. Þá lét skólastjóri Víðistaðaskóla loks undan áskorunum
og tilvísunum í stjórnsýslulög um að ég ætti andmælarétt, og rétt á að fá að
vita hver hefði gefið mér slæm meðmæli. Ég hafði án árangurs reynt að fá
það í fleiri skólum,og gekk það lengst í Kársnensskóla, þar sem skólastjóri,
(Guðrún) skrifaði að hún treysti sé ekki til að ráða mig, vegna meðmæla
(ef hægt er að kalla slæm ummæli um fólk meðmæli ).
Ég skrifaði henni árangurslaus bréf með tilvísan í stjórnsýslulög, sem
eiga að tryggja sanngjarna meðferð mála. Erla hafði greinilega beðið hana,
og væntanlega aðra sem hún hafði rægt mig við, að þegja yfir því að hún væri
að tala illa um mig. Hún er auðvitað vanhæf vegna deilna okkar, OG að brjóta
samninginn með ákvæðinu um engin eftirmál.
Ármann bæjarstjóri og Þorsteinn starfsmannastjóri í Kópavogi,brugðust ekki
við ítrekuðum bréfaskriftum þannig að ég vissi ekkert hver hafði gefið þessi
hrikalega slæmu meðmæli, þannig að betra væri að börnin fengju ENGA
tónmenntakennslu heldur en að ég kenndi.
Þetta fólk,sýndi algert virðingarleysi fyrir lögum og reyndar lélegt siðgæði,
ekki síst Guðrún skólastjóri, sem ætti að hafa vitað að Erla væri að hefna sín á
mér, fyrir að klaga hana.
K.Í. gerði því miður EKKERT, þrátt fyrir að ég gerði mitt
besta í að fá fólk þará bæ til að berjast fyrir mig og réttlætinu. Þá var reyndar ekki
vitað, að Erla stæði á bak við þetta, en það HEFÐI komist upp, ef lögum hefði verið
fylgt.
Í staðin var ég að berjast við vindmyllur og gruna aðra um róginn.
Hefði K.Í. skorað á Kópavogsbæ að fara eftir stjórnsýnslulögum, um
rannsóknarreglu, andmælarétt og meðalhófsreglu hefði málið kannski
farið þannig að ég hefði fengið vinnu í Kársnesskóla.
Varla finnst fólki í alvöru, að það sé eðlilegt að kona, sem ég klagaði fyrir
slæma framkomu við mig skuli geta hefnt sín (nafnlaust) árum saman.
Flataskóli og Víðistaðaskóli fengu báðir að ráða ófaglærðan leiðbeinanda
frekar en mig, án þess að ég fengi að sjá rök, (sem ég gæti svo andmælt.)
Þar var alls ekki farið eftir stjórnsýslulögum og loks síðasta haust, þegar ég
vissi að Erla hafði lagt mér til illt orð og skrifaði formanni Undaþágunefndar,
Erlu Guðjónsdóttur, sagði henni frá því að ég vissi um aðkomu Erlu að mínum
málum , sem hún væri þó vanhæf til að fjalla um og þar að auki að brjóta
samning. Ég heimtaði RÖK fyrir því að ég fengi ekki vinnuna og sagði að
margir aðrir skólastjórar gætu gefið mér meðmæli. Svo bað ég hana að
upplýsa um hvort hún sjálf væri á nokkurn hátt vanhæf til að fjalla um
mín mál, vegna tengsla við nöfnu hennar, Erlu Guðjónadóttur.
Ekki var því svarað, (sem hlýtur að vera ólöglegt,og allavega ekki til
fyrirmyndar). Engin rök voru nefnd, aðeins sagt að nefndin hefði
ákveðið að það mætti ráða ófaglærðan í minn stað .
Kennarasamband Íslands gerði heldur ekki neitt, þegar ég loksins hafði
upplýsingar um að Erla skólastjóri og Fræðsluskrifstofa Hafnarfjarðar,
hafi að öllum líkindum staðið fyrir meðmælunum slæmu sem hafi
komið í veg fyrir að ég fengi atvinnu í fjölda skóla, árum saman. Ég hef þó ekki
fengið að sjá þau, en Erla skrifaði minnisblað sem fylgdi með svari Fræðslu-
skrifstofu, þar sem hún segir að ýmislegt hafi verið að minni kennslu og það
hefi verið reynt að leiðbeina mér, án árangurs. (Hún nefnir samt engin dæmi).
Erla hefur ekki neina tónlistarmenntun að því er ég veit, og reyndi ekkert að
leiðbeina mér . Ég get nefnt það að námsstjórinn í tónmennt í Hafnarfirði,
Egill Friðleifsson vann í Öldutúnsskóla fyrstu árin eftir að ég byrjaði, og hafði
ég beinan aðgang að ráðum og aðstoð hjá honum, og aldrei var hann með
neikvæðar athugasemdir um mína kennslu. Erla er að ljúga í hefndarskyni.
Fræðsluskrifstofa nefnir hins vegar bara erfið samskipti sem ástæðu, ekki
að ég sé slæmur kennari.
Ég fullyrði ekkert um hvort ég sé frábær kennari, en ég hef örugglega batnað
talsvert sem slíkur,bæði vegna reynslunnar, en einnig þar sem ég hef bætt
mig tónlistarlega með meira tónlistarnámi. Framhaldsnám í söng, námskeið í
kórstjórn, nám í Orgelskóla Þjóðkirkjunnar,þar sem ég tók tíma í píanóleik,
orgelleik og söng. Einnig má nefna nám í gítarleik og örnámskeið í
agastjórnun, sem ég fékk síðasta árið mitt í Öldutúnsskóla.
Erfiðu samskiptin eru auðvitað við Erlu, en hvað þá um alla hina,
þá sem hættu ? Þorðu ekki að kvarta yfir stjórnunarstíl hennar, en forðuðu
sér bara. Magnús Baldvinsson fræðslustjóri ætti að skammast sín fyrir að
láta Erlu komast upp með þetta og hann er auðvitað sjálfur ábyrgur fyrir
þeim brotum á stjórnsýslulögum sem þarna eru framin, auk þess að
starfslokasamningurinn var með ákvæði um engin eftirmál og er hann
auðvitað þverbrotinn.
Afleiðingar þessa brota eru þær að eftir að kreppan skall á og að þrengdi hef
ég aldrei haft fulla vinnu við tónmennt, en misst af vinnu í þó nokkrum
skólum eins og Flataskóla (þar sem skólastjórinn var ótrúlega neikvæður í
minn garð ) sem gæti eftirá að hyggja verið vegna þess að skólastjórar á þessu
svæði hittast á fundum. Í Kársnesskóla og Ingunnarskóla var ákveðið að hafa
frekar enga tónmennt frekar en að ráða mig. Ég fékk ekki að vita af hverju
sama þó að ég benti á stjórnsýslulögin. Á Álftanesi fékk ég ekki vinnu, en þar
sat Erla í bæjarstjórn fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Síðast, en ekki síst, ég hef ekki
fengið vinnu í alls fimm skólum í Hafnarfirði, án útskýringa, nema loks í fyrra-
haust, þegar Hrönn skólastjóri Víðistaðaskóla gaf það upp að fræðsluskrif-
stofan mælti gegn því að ég fengi vinnu. Samskiptin...
Hinir skólarnir voru Engidalsskóli, Setbergsskóli, Hraunvallaskóli og svo nú
fyrir nokkrum vikum Öldutúnsskóli.
Ég komst að því að rafræn umsókn sem ég sendi nú í haust hvarf og er
ég bað um viðtal við Valdimar Víðisson þóttist hann enga umsókn hafa fengið,
og vera búinn að gera ráðstafanir til að hafa enga tónmennt. Ég sagði að
ég mundi senda afrit af staðfestingu á móttöku umsóknar, en möguleiki væri
á að hún hefði verið látin hverfa . Ég sendi auðvitað snarlega
staðfestinguna, en fékk svo mjög undarlega orðað bréf þar sem Valdimar
segist ekki ætla að ráða mig vegna viðhorfa til umhverfisins, í staðin
fyrir að segja að mér hefði verið nær að klaga Erlu um árið.....
Ég komst svo að því, þegar ég skoðaði kennaralistann í Öldutúnsskóla á netinu
að þar er Hallfríður Erla Guðjónsdóttir (Erla skólastjóri) skráð sem
stundakennari og það er nóg til þess að ekki er hægt að ráða mig.....
(Hún er sem sé þetta umhverfi ). Greinlega hefur Erla enn gott samband við
Magnús Baldvinsson, vin sinn á fræðsluskrifstofunni, og Valdimar gerir bara
eins og umhverfið segir honum, enda búinn að vera undir hælnum á Erlu
síðustu ár, sem aðstoðarskólastjóri. Skiptir engu, þó verið sé að brjóta lög
og samning um engin eftirmál, eins og það var orðað í starfslokasamn-
ingnum við mig.
Ég var búinn að senda blöðunum efni í blaðagrein um þessi mál í mars, og
fékk loforð um birtingu, en ég yrði að skrifa greinina sjálfur undir nafni...
Mér fannst betra að bíða aðeins og sjá hvort ég fengi vinnu í friði, eftir að það
hafði komist upp hvernig málið var vaxið. Hélt kannski að heiðarlegu fólki
með réttlætiskennd og virðingu fyrir lögum þætti ótækt að ég fengi ekki vinnu
vegna hefndaraðgerða Erlu og Magnúsar vinar hennar fræðslustjóra.
Ég hafði skrifað öllum í bæjarstjórn Hafnarfjarðar um málið, án þess að
nokkur svaraði. Hringdi þá í einn úr bæjarstjórn, sem lofaði að koma erindinu
til Haraldar bæjarstjóra. Þar kvartaði ég yfir brotum á starfslokasamningnum,
stjórnsýslulögum og almennum siðferðisbresti fólks sem leggur svona í
einelti. Haraldur Líndal Haraldsson svaraði þannig að hann teldi ekki að
erindi mitt kallaði á viðbröð af hálfu bæjarins.....
ER ÞETTA MANNAUÐSSTEFNA HAFNARFJARÐAR ?
Sá sem vogar sér að klaga yfirmann fyrir slæma framkomu og einelti, hann
skal aldrei fá vinnu framar í Hafnarfirði og þar sem hægt er að koma í veg fyrir
það. (Mín greining..) Þetta er greinilega mannauðsstefna Haraldar.....
Þetta er stjórn hægri manna og Erla er auðvitað með góð ítök í Sjálfstæðis-
flokknum. Öðru vísi kom Lúðvík Geirsson fram, þegar bærinn gerði starfs-
lokasamning við mig, til að tryggja að ég hefði ekki fjárhagslegan skaða af að
hætta kennslu í Öldutúnsskóla. Ég fékk laun í heilt ár. Það var öðruvísi
mannauðsstefna. Haraldur bæjarstjóri hefur reyndar fengið gagnrýni fyrir
að koma illa fram við fleiri, t.d. hafnarstarfsmenn,ef ég man rétt. Viljum við,
sem búum í Hafnarfirði hafa svona mann, sem sér ekkert athugavert við það
að brjóta samninga og stjórnsýslulög ?
EINELTI MEÐ HJÁLP MARGRA....
Hefði fólk nú almennt haft siðgæðisvitundina í lagi, og virðingu fyrir lögum,
þá hefði Erla aldrei komist upp með að rægja mig árum saman (nafnlaust) og
koma í veg fyrir að ég fengi vinnu í fjölmörgum skólum. Fjárhagslegt tap er
mjög mikið, frá c.a. 100 til 150 þúsund á mánuði, þegar ég hef unnið
láglaunastörf og upp í 250 þúsund, þegar ég hef ekki fengið vinnu á
móti því hlutastarfi (35%) sem ég hef haft í Gerðubergi við kórstjórn.
Þar er ég á mínu tuttugasta og öðru ári sem kórstjóri, og samskiptin
bara ennþá í góðu lagi..... Guðrún Jónsdóttir forstöðukona var enda
alltaf efst á lista mínum yfir meðmælendur þegar ég sótti um vinnu.
(Erla komst auðvitað aldrei á listann og enginn hefði átt að hlusta á
hennar óumbeðnu meðmæli sem sýna bara hvað hún er illa innrætt
og hefnigjörn.) Hún hefur kostað mig um það bil 12 milljónir í launatapi,
miðað við að ég hefði fengið fulla stöðu sem kennari. Í viðbót hafa þau
blóðsugufyrirtæki sem lifa á því að þyngja byrðar þeirra sem skulda,
Mótus,Lögheimtan og hvað þau nú heita sogið lífskraftinn úr okkur hjónum.
Hefði ég haft fulla vinnu,hefði ástandið verið allt annað, og blóðsugurnar
ekki fengið neitt frá okkur. ( Það er ekki gaman að hlusta á konuna sína
gráta af fjárhagsáhyggjum...)
KENNARASAMBAND ÍSLANDS hefur brugðist hrikalega og það er til hábor-
innar skammar að stéttarfélag skuli ekki gera neitt til að farið sé að lögum
við ráðningar á fólki. Meira að segja eftir að það komst upp, að Erla Guðjóns-
dóttir og Magnús Baldvinsson stæðu á bak við slæmu meðmælin í trássi við
stjórnsýslulög og gerðan starfslokasamning, þá gerir K.Í. EKKERT.
Ég skrifaði formanninum, Þórði Árna Hjaltested í vetur og kvartaði yfir því
að lögfræðingurinn Erna Guðmundsdóttir og Ólafur Loftsson hefðu í gegnum
árin ekki viljað fara í mál eða gera neitt til að hjálpa mér, þegar ég hefði
kvartað yfir brotum á stjórnsýslulögum við ráðningar. Ekki einu sinni þegar
aðild Erlu hefði loks komist upp. Það er ekki mikill baráttuvilji eftir í Ólafi,
sem þó var með mér á fundi fyrir tíu árum þar sem kæran var til umræðu.
Hann sem var svo ánægður með samninginn, gerir nú ekkert, þó að hann sé
brotinn. Lögfræðingurinn virðist ekki hafa lesið stjórnsýslulögin, eða halda að
þau séu bara grín...
Það er kominn tími til að fá almennilegt fólk í forystu K.Í.
FINNST FÓLKI ÞETTA VERA ALLT Í LAGI ?
Ég get nefnt í lokin, að þegar ég hafði verið fimm ár í Hvassaleitisskóla þá
ákvað Pétur Orri Þórðarson skólastjóri að taka tónmenntatímann af 7. bekk,
og nota tímann í annað. (Held stærðfræði). Foreldrar og nemendur söfnuðu
þá undirskiftum og kröfðust þess að börnin fengju tónmennt aftur, (sem þau
og fengu). Ég er ekki að halda því fram að það hafi verið vegna þess að ég hafi
verið svona frábær kennari, en mér hlýnaði samt svolítið um hjartað.
Nú er spurningin,hvort ég á að ráða mér alvöru lögfræðing, og fara fram
á skaðabætur frá öllum þeim sem bera ábyrgð á atvinnutapi mínu, á einn eða
annan hátt, í allt sennilega rúmlega 12 milljónir.
Spurningin er líka, hvort mér gangi betur að fá vinnu við tónmenntakennslu,
eftir að fólk les þessa grein.
Eftir stendur að það virðist ríkja ALGERT VIRÐINGARLEYSI fyrir lögum hjá
mörgu af því fólki sem fer með stjórn mála á Íslandi.
Kári Friðriksson tónmenntkennari og söngvari.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Framtíðarsýn 2014.
Vind og sjó hér virkja þarf,
vel þá orku nýta.
okkar bíður ærið starf,
ættum minna að kíta.
Finna þurfum fleira en ál,
farsælt mun það vera.
Það er ekki mikið mál,
margt er hægt að gera.
Hérna næring út um allt,
er í " þangi falin".
Hana að selja´er harla snjallt,
hún er "meinholl" talin.
"Sjálfs er höndin hollust þín"
hana að nota, gaman.
Okkar bíður framtíð fín,
fögnum henni saman.
Verum ei með "hlekki´um háls"
höldum siðum góðum.
Lifum hér í friði, frjáls,
fyrir öðrum þjóðum.
Ég skrifaði þetta inn á Facebook áðan vegna ummæla þar,
næstum án þess að stoppa, þetta "rann svo létt" upp
úr mér.....
ÞAÐ ER FRAMTÍÐ hér á landi......(Þessu MÁ deila.....)
5.8.2013 | 13:19
Fiskikóngurinn,bara kóngur yfir víetnömum ? Íslendingar fá síður vinnu hjá Fiskikónginum....
Um atvinnurekendur sem "misnota aðstæður og svíkja starfsfólk"
FISKIKÓNGURINN vil ráða og ríkja,
en ræður bara yfir víetnömum.
Umsækjendur íslenskir,þeir víkja,
ort er þetta af slíkum,nokkuð grömum.
Útlendingar ýmsum stöðum sinna,
auðveldara reynist þá að kúga.
Bakatil,þeir víða reynast vinna
voða létt að svíkja,og í þá ljúga.
Við ég ekki versla á slíku stöðum,
vil ég að þið gerðuð þetta líka.
Atvinnulaus,ei vil standa í röðum,
ekki stjórni fasistanna klíka.
Ort 24.07.2013. Kári Friðriksson.
Ég á það til að yrkja vísur út af hinu og þessu, og auðvitað gerði ég það líka, þegar ég komst að því að "Fiskikóngurinn" ætlaði ekki að ráða mig,þrátt fyrir að hafa látið líklega, og talað um að hann vantaði "Foringja í búðina". Ég sótti nú bara um vinnu við handflökun, þar sem gefið var í skyn að maður fengi borgað fyrir flakað kíló.....Ég sá,þegar ég kom á staðinn að flestir sem þarna voru voru frá útlöndum og ég heyrði bara um fólk frá Víetnam. Ég beið lengi eftir viðtali, og fylgdist með, og ætlaði að tala aðeins við einn handflakarann. Sá gat hvorki talað ensku né íslensku, og VAR GREINILEGA ekki búinn að flaka nærri því eins mikið og ég um ævina.....Ég gat ekki rætt við Kristján "Fiskikóng" í það sinn, vegna anna og heldur ekki daginn eftir, þegar ég renndi við... Beið þá einnig í drjúga stund, en sá aldrei að fólkið sem vann þar baka til við flökun og snyrtingu næstum allt frá Asíu, FÆRI í kaffi eða MAT !
Ég ætla ekki að fullyrða neitt, en kannski fær þetta fólk ekki rétta kaffi eða matartíma.... STÉTTARFÉLÖG eru kannski ekki að standa sig . Þau ættu að athuga launaseðla og ræða við fólk, EKKI þegar það er fyrir framan vinnuveitanda....
ÞAÐ GANGA SÖGUR um íslenska atvinnurekendur, sem nota sér að kúga útlendinga sem vinnuafl og kannski er "Fiskikóngurinn" einn þeirra. Ég get ekki fullyrt það, en beið frá 11:30 til 12:45 eftir viðtali og sá ENGANN fara í mat þá.
Þegar ég skrifaði í pirringi bréf og lýsti óánægju minni með að fá ekki vinnu, þrátt fyrir að vera með talsverða reynslu og að ég væri mjög á móti því að fyrirtæki flyttu inn útlendinga þegar væri þó nokkuð atvinnuleysi og sum þeirra brytu svo á þeim réttindi fékk ég skot til baka um að ég væri "rasisti og dóni".
Kannski er ég það, en ég er á móti "nútíma þrælahaldi" og vil EKKI VERSLA við slík fyrirtæki.
Ég keypti t.d. ALDREI HAMBORGARA á MCdonalds þar sem það komst fyrir opnun upp að eigendur ætluðu að borga unglingum "minna en lágmarkslaun". Stéttarfélög stoppuðu það, en ÉG VILDI EKKI versla við "drullusokka sem reyndu svona".
Ég hef frétt um veitingastaði sem svíkja launalega unglinga og útlendinga, og passa mig að fara ekki inn á slíka staði, og hvet aðra til að gera það líka.
Ég man eftir hálf fasískum blaðagreinum um að það sé gott að hafa "hóflegt atvinnuleysi" svo að verkafólk fari ekki að derra sig...
Ég ætla EKKI AÐ KAUPA FISK AF FISKIKONGINUM ! Ætla að hringja í stéttarfélagið og biðja það að athuga aðstæður á vinnustað og fá að sjá hvað fólkið hefur í laun.
Ég hvat AÐRA til að gera slíkt hið sama, ef þeir vita um vinnustaði þar sem farið er illa með unglinga eða útlendinga á einhvern hátt. Láta stéttarfélög vita, og versla ekki nema ástandið batni....
Vonandi fer heimurinn batnandi, við getum öll gert eitthvað, Fair trade t.d.
Virðingarfyllst, Kári Friðriksson tónmenntakennari (atvinnulaus ennþá) kórstjóri,handflakari o.m.fl.
12.1.2010 | 21:42
Varðhundar valdsins,FRÉTTAMENN Á RUV og víðar.
Ég hef oft áður pirrað mig á valdaþjónkun fréttamanna sem birta bara það sem "á að birta". Þegja aðrar skoðanir í hel,því sem næst og eru allavega að mínu mati mjög hlutdrægir á köflum. Þetta hefur í mörg ár verið áberandi í allri Evrópu umræðu og þeir sem tala fyrir frjálsu Íslandi fá mun minni tíma og athygli hjá fjölmiðlum.(Það á einhver eftir að skrifa doktorsritgerð um það eftir nokkur ár.) Það síðasta sem stakk mig hjá fjölmiðlum var fréttaflutningur að kvöldi dags þegar forsetinn hafði vísað Icesave lögunum til þjóðarinnar. Margir menn (flest karlmenn,en það er nú efni í annað blogg) komu í viðtal en ENGINN af þeim sem stóðu fyrir undirskriftasöfnuninni góðu eða hafa talað á móti því að við eigum að borga. Ég skora á t.d. fjölmiðlafræðinga og fleiri að fylgjast með og skrá hjá sér staðreyndir um hlutdrægni og einsleitan fréttaflutning. Fjölmiðlar voru líka bestu vinir útrásarvíkinganna og sýndu "viðskiptahetjurnar" í rómantísku ljósi og spurðu aldrei (sjaldan) óþægilegra spurninga. Reyndar keyptu sumir sér fjölmiðla til að geta bætt ímyndina og tókst að heilaþvo part af þjóðinni og jafnvel dómara.(Nema þá að 300 miljónir hafi þurft til). Ég er nú svo illa innrættur að detta í hug að þegar mjög vönduð mál á hendur ríkustu manna þjóðarinnar verða að engu fyrir dómi hafi einhvers staðar færst til peningar.Ef það hefur gerst,þá er óskandi að það komist upp. Það eru til gögn um tekjur fólks mörg ár aftur í tíman og víða erlendis er rannsakað þegar fólk virðist hafa mikil fjárráð,hvort tekjur hafi verið í samræmi við það. Verði þetta framtíðin,munu sumir þeir sem berast mikið á en hafa "vinnukonuútsvar"ekki eiga von á góðu. Jæja,þetta losar aðeins um gremjuna yfir ástandinu,ég ætla ekki að kaupa rauða málningu.Vonandi á Íslenskt þjóðfélag eftir að batna í framtíðinni og við læra eitthvað jákvætt. Kári.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.10.2009 | 12:48
Peningar geta haft áhrif gegn UMSKURÐI KVENNA og BARNAÞRÆLKUN.
Ég setti blogg um daginn á vefinn og talaði fyrir viðskiptaþvingunum gegn þjóðum sem misbjóða konum,umskera þær t.d. Ég vil heldur EKKI KAUPA VÖRUR sem framleiddar eru með barnaþrælkun. Mér finnst það uppgjöf og í raun viðurkenning á ástandinu eins og það er að "kaupa börn úr ánauð" Það á að mótmæla bæði umskurði á konum,sem er stórglæpur og einnig barnaþrælkun. Indverjar t.d. eru að senda upp geimför og eiga kjarnavopn. Svoleiðis stórþjóðir eiga ekki að láta barnaþrælkun líðast. Ég kaupi stundum "fair trade" kaffi,þótt ég velji nú reyndar oftast íslenskt Braga kaffi,svartan Rúbín. Drekk íslenskan bjór o.f.l. til að styrkja íslenskan iðnað,uppáhaldið er Premium. Kaupi ALLS EKKI vörur frá Egyptalandi eftir að ég las í Mogganum að 97 % kvenna þar væru umskornar. Kaupi ekki vörur frá Indlandi nema vera nokkuð viss um að ekki hafi verið farið illa með fólk . Ég sver að ég HEF ALDREI keypt McDonald´s hamborgara á Íslandi,frétti að eigendur hefðu reynt að svína á ungmennum og borga þeim MINNA en lágmarkskaup.Það var stöðvað af verkalýðsfélögum,en síðan versla ég ekki við drullusokka. Væri til í að standa með mótmælaspjald hjá fyrirtækjum sem þekkt eru af svínslegri framkomu við fólk. VERUM VIRK. Okkar viðskipti geta verið til góðs. Verslum ekki við þá sem kúga aðra. Kári Friðriksson.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 21.10.2009 kl. 12:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Kári Friðriksson
Færsluflokkar
- Bílar og akstur
- Bloggar
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar