Íslenska Óperan. - Tenor áskorun!

Ágæta óperu-áhugafólk.

Ég er tenorsöngvari,og einn af þeim sem alltaf hafa verið "næstbestir" eða hafa ekki fengið að syngja hlutverk í Íslensku Óperunni.Reyndar hef ég kunnað nokkur tenorhlutverk utanað,og hef getað verið "til vara" ef óperustjóri hefði kært sig um.Ég hef ekki gert veður útaf því að Jóhann Friðgeir Valdimarsson hafi verið tekinn fram yfir mig til að syngja Cavaradossi eða Turiddu,þó að ég hafi kunnað hlutverkin,hann hentar ágætlega í þau.Enda hefur hann sungið ennþá dramatískari rullur eins og Canio.Einnig Radames og hann sagðist vera að fara að syngja Lohengrin í viðtali þegar hann var að kynna tónleika sem kölluðust "Tenorarnir þrír" og voru haldnir í Háskólabíói í janúar síðastliðnum. Ef fólk fer inn á www.operabase.com þá getur það flett upp óperusýningum og skoðað hverjir eru að syngja víða um heim.Það getur fundið tenora sem eru að syngja Radames,Canio eða jafnvel Lohengrin,(sem er Wagner ópera) og fundið út hvað þeir eru að syngja um þessar mundir. Einnig er hægt að skoða hvað þeir sem syngja Hertogann í óperunni Rigoletto eru að syngja. Fólk mun sjá að menn syngja EKKI á sama tíma hlutverk Hertogans og fyrrnefnd hlutverk.Þau eru mun þyngri og dramatískari en hlutverk Hertogans liggur hinsvegar mjög hátt og alls ekki allir tenorar ráða við það.                                                                                                      Þeir sem stjórna í Íslensku Óperunni virðast alls ekki vita þetta,sem flestir mínir söngkennarar hafa líka sagt um raddir,að þær þroskist frá léttum hlutverkum yfir í þyngri,en EKKI til baka.Mjög fáir ná t.d því að geta sungið Wagner hlutverk eins og Lohengrin.Þar þarf kraft og þol en ekki endilega mjög háa rödd. Jóhann Friðgeir hefur verið áberandi og sungið mikið hjá óperunni síðustu ár,hans rödd er nokkuð kraftmikil og með fallegan hljóm,en hann er hins vegar frekar þungur í hæðinni og er þekktur fyrir að LÆKKA sönglög og aríur.Einnig klifrar hann  stundum,eða rennir sér upp á hæstu tóna,með viðkomu á öðrum neðar og það finnst mér allavega vera galli.                                       Íslenska Óperan hefur því miður oft ekki gefið upp hvaða verk á að flytja fyrr en með mjög stuttum fyrirvara og þá oftast verið búið að ákveða hverjir syngja aðalhlutverk. Þetta er mjög þægilegt,ef fólk þar á bæ nennir ekki að hlusta á fullt af fólki sem vildi kannski "syngja fyrir" ef óperan gæfi upp prógramm ár fram í tíman eins og flest "alvöru óperuhús" gera.Talsverð óánægja er með þetta hjá sumum söngvurum,en fólk þorir ekki að kvarta af ótta við að "styggja" þá sem ráða.                       Ég frétti af tilviljun í maí, að það stæði til að setja upp óperuna Rigoletto eftir Verdi í vetur.Það er ein af mínum uppáhalds óperum og ég kann aðal tenorhlutverkið utanað,og ræð við hina háu legu.Það vill svo til að ég setti fyrir tæpu ári ALLAN TENORPARTINN úr Rigoletto inn á youtube undir nafninu "karifrid".Þetta er í nokkrum bútum og undirleikurinn er sinfoníuhljómsveit ítölsk,sem hefur gefið út og selt fullt af efni fyrir söngvara og hljóðfæraleikara.Rigoletto mínus Duca var það sem ég keypti,en einnig var til útgáfa án Rigoletto,án Gildu o.s.f.v.                                                                               Fyrir utan þetta efni hef ég sett fjölmörg sönglög og aríur á youtube,t.d. Che gelida manina,Di quella pira,Non piangere Liu,Nessun dorma,O paradiso,Lultima canzone,Malia,La serenata,O sole mio,Draumalandið,Rósin,og fleira.Sumt með eigin undirleik á gítar,sumt með píanóundirleik Árna Ísleifssonar ,en flest með karaoke sinfoníuundirleik.                                                                        Þessar upptökur eru gerðar með Samsung myndavél svo að hljómgæðin eru frekar slök.Samt heyrist að ég er tenor sem er með mikla og kraftmikla hæð.sem ekki þarf að lækka aríur nema síður sé.Hef ég t.d. gert nýja kadensu í lok aríunnar La donna e mobile,þar sem ég skrepp upp á Cís fyrir ofan Háa C. Einnig hef ég handskrifað O sole mio upp í As dúr,enda svo í "Corelli stíl" og fer upp á Háa C á síðustu nótu.Ég nota einnig oft O sole mio sem síðasta lag á Fjörukránni,þar sem ég syng fyrir matargesti nokkur kvöld í mánuði.Leik þá sjálfur undir á gítar.                                                          MISTÖK HJÁ ÓPERUSTJÓRANUM!Þegar ég frétti að stjórn óperunnar,eða óperustjórinn Stefán Baldursson öllu heldur ætlaði að láta Jóhann Friðgeir syngja hlutverk,sem ég allavega, tel að henti honum engan vegin og geti jafnvel skemmt röddina í honum,ákvað ég að láta til skarar skríða.Reyna að berjast fyrir því að fá að syngja Hertogann,sem ég tel henta mér mun betur en Jóhanni.Skoraði ég á óperustjórann að bera okkur saman,helst á tónleikapalli í stóru húsi.(Háskólabíói).Þar mundi heyrast að ég væri með miklu betri hæð og gæti sungið allt hlutverkið án þess að lækka neitt.(Eða renna mér og klifra upp á tóna.)Einnig er Íslenska Óperan að fara að komast í miklu stærra húsnæði en Gamla Bíó,svo að raddir sem hljóma frekar litlar fyrir þann sal munu ekki duga í Nýja Tónlistarhúsinu.(Þarna er ég ekki að tala um Jóhann Friðgeir). Af því að Stefán óperustjóri hefur ekki svarað (nema einu sinni) pósti frá mér,fór ég inn á heimasíðu óperunnar og fann netföng allra sem sitja þar í stjórn.Þar á meðal eru Diddú og Júlíus Vífill sem ættu að vita eitthvað um lögmál sönglistarinnar.Söngvari sem er búinn að syngja fullt af þungum dramatískum hlutverkum og jafnvel farinn að hanga örlítið neðan í tóni eins og má heyra í aríunni Celeste Aida,sem er á youtube.com með Jóhanni  (frasinn "Celeste Aida" er einmitt mjög óhreinn.) Einnig má heyra í (annars ágætri upptöku) Recondita armonia að Jóhann hefur lært vel þá lista að "svindla á hæðinni" með því að fara snemma niður af háum tónum.Hlustið t.d. á  e te-e bel ta-a  þar sem farið er niður á næsta tón of snemma.Það eru ekki allir sem átta sig á þessu nema að vita um það.Þarna hljómar Jóhann glettilega vel,nema maður hafi ekki smekk fyrir svona svindli.     Vill stjórn óperunnar að Stefán geri mistök í að ráða í hlutverk og láti "allt að því Wagner tenor" syngja hálýrískt hlutverk,sem gæti hugsanlega,ef illa fer bundið enda á söngferil hans.                        ENGINN úr stjórninni,og ekki heldur óperustjórinn svaraði E-mailnum frá mér,sem fjallaði um þetta efni.Þá ákvað ég að senda þeim framhaldsbréf,sendi einnig Jóhanni sjálfum áskorun um að mæta mér á tónlekum,helst í Háskólabíói,svo sjá mætti hver hentaði betur í hlutverk Hertogans,og í raun til að SANNA að hann GETI sungið hlutverkið. Ég "meðfram sendi" þetta á fullt af frétta og fjölmiðlamönnum.  ENN ekkert svar. Engin fréttastofnun nema Bylgjan sýndi þessu áhuga og mætti þó teljast FRÉTTNÆMT að skorað sé á einn frægasta tenor landsins og einnig að Íslenska Óperan sé loksins gagnrýnd. Það er ekki eins og sé verið a ráðast á einhvern aumingja að skora á Jóhann að "sanna sig " eða keppa um hlutverkið við mun ófrægari tenor.Hann verður auðvitað að syngja þetta í vetur,en þá hefur hann ekki (hinn hættulega?) samanburð við Háa Cés tenor eins og mig.          Bylgjan tók sem sé viðtal í morgunþætti og Heimir sagði eitthvað á þá leið við mig að hann vildi ekki taka þátt í að þagga þetta niður.                                                                                                      Ég fékk nokkur viðbrögð við þessu,EKKI frá Jóhanni eða Íslensku Óperunni,en sumir sögðu að nú mundi ég örugglega ALDREI fá að syngja í Íslensku Óperunni.Þessu yrði ekki gleymt.Ég sagði að kannski væri það rétt,um ÞENNAN óperustjóra.Ekki nennti ég að þegja um svona "misráðningu" þrátt fyrir að einhverjir gætu móðgast.RÖKIN hjá mér eru góð.Ég frétti að Hamborgaróperan (minnir mig) vildi ráða Jóhann Friðgeir til sín.Þar mundu þeir örugglega ekki láta hann syngja í Rigoletto.    Staðreyndin er sú að söngvarar hafa eyðilagt raddir sínar á að syngja vitlaus hlutverk,sumir til frambúðar.Fræg er saga af Mario Del Monaco,sem er einn frægasti dramatíski tenor allra tíma.Hann lenti hjá kennara í Rómar óperustúdióinu sem lét hann syngja allt of "létt" hlutverk svo að hann,sem var búinn að byggja upp mjög öfluga rödd lenti í miklum raddvandamálum.Loks fór hann til gamla kennarans sem gat leiðrétt vandann. Vonandi lendir Jóhann ekki í því sama,ef hann syngur Hertogann,samt er það dálítil áhætta,og hann ætti að hugsa út í það að EF hann blómstrar sem Wagner tenor eru peningamálin á uppleið hjá honum.                                                                      Þó að ég segi frá því að Jóhann sé að lækka lög og aríur er það ekki til að gera lítið úr honum,röddin hans er svona,en samt finnst flestum hann flottur.Ég get nefnt aðra tenora sem lækka lög,t.d. Stefán Helga Stefánsson,hann á ekki rödd upp fyrir A,en er með eina fallegustu tenorrödd á Íslandi.Ég var einmitt að spjalla við hann um daginn (m.a. um Jóhann),en sagði svo við hann að mér þætti hann með mjög fallega rödd og teldi að hann ætti að æfa Mozart aríur og syngja fyrir hjá óperunni.                                                                                                                                            Algengt er reyndar að Háa Cés aríurnar Di quella pira og Che gelida manina séu lækkaðar um hálfan tón,þótt Ferraro kennari minn á Ítalíu segði mér að ítalir lækkuðu helst ekki.Þegar La Boheme var flutt í Þjóðleikhúsinu var einhver rígur á milli "Garðars manna" og "Kristjáns manna",Garðar átti víst að taka lægri útgáfuna en Kristján syngja upp á C.Ég sá því miður ekki þær sýningar. Garðar söng reyndar Hertogann á nokkrum sýningum þegar Íslenska Óperan flutti Rigoletto 1990.Þá hafði hann sungið hlutverk Canio um vorið en einnig Il Trovatore og Radames áður.Hann var þá slétt fimmtugur og var ekki að blómstra eins sem Hertogi og í hinum rullunum.Hann var orðinn óþarflega þungur og dramatískur fyrir Hertogann.Ég var að vinna á textavél þá,og sá allar sýningarnar.Að lokum fékk óperan tenora frá útlöndum til að syngja seinni sýningarnar.                                                           Þegar kom í ljós að allir hjá Íslensku Óperunni ætluðu að þumbast við og þegja og reyna að þagga þetta allt niður,og enginn viðbrögð komu frá þeim og enginn frétta né blaðamaður hafði heldur áhuga á að fjalla um málið þá ákvað ég að skrifa sjálfur grein,skammast ögn út í óperustjórann og stjórn óperunnar og SKORA opinberlega á Jóhann Friðgeir að syngja með mér á tónleikum.Við mundum syngja næstum allt hlutverk Hertogans og svo mundi koma í ljós hvort hann ráði við hlutverkið og einnig hvort ég sé ekki betur hæfur,með mína öruggu hæð,að syngja heldur en hann. Ég skrifaði grein og sendi fyrst í Fréttablaðið,eftir ítrekun kom loks svar um að þeir vildu ekki birta greinina.Mér fannst það ekki mikil lýðræðisást og frekar lélegt að hjálpa ráðandi tónlistarvaldastétt að sleppa við gagnrýni og auðvitað Jóhanni að sleppa við svo víðlesna áskorun sem þarna hefði orðið.Fréttablaðið er auðvitað margfrægt fyrir að hafa á einkar hlutdrægan hátt aðstoðað eigendur sína í gegnum árin. "Baugsmiðill" og lifir á auglýsingum ,svo að kannski var nóg að Íslenska Óperan og hugsanlega einhver vinveitt stórfyrirtæki hótuðu að auglýsa ekki nema blaðið tæki þátt í að þagga mig niður.  Allavega gerði ég stöku um þá,í pirringi yfir að minn lýðræðislegi réttur til að "rífa kjaft" var ekki virtur .    Löngum þeir guma af lýðræðisást-  ég leyfi mér bara að segja,-                                     að Fréttablaðsmönnum er skömminni skást- að skammast sín bara og þegja. Nú hef ég sent Morgunnblaðinu grein um þetta mál titlaða "Íslenska Óperan.-Tenor áskorun!  Vonandi sjá þeir fréttagildið í þessu. EF fólki hjá Íslensku Óperunni finnst ég lélegur söngvari og alls ekki hæfur til að syngja aðalhlutverk af neinu tagi þá ætti nú ekki að vera hættulegt að svara svona gagnrýni með því að láta okku Jóhann syngja báða á sama stað aríur úr Rigoletto.                       Óperustjórinn fékk bréf frá mér haustið 2008 þar sem ég sagðist geta verið til vara þar sem ég kynni Turiddu utanað,ef annar væri veikur,Kristján eða Jóhann.Sagði ég að ég væri í námi hjá David Bartleet,sem margir íslendingar hafa skroppið til í tíma,m.a. Garðar Thor,Gunnar Guðbjörns og Júlíus Vífill.Sagði David mér þá að hann þekkti "engan tenor á Íslandi sem gæti keppt við mig í hæðinni." Var ég all ánægður með það og sagði Stefáni að ég vildi gjarnan syngja á tónleikum með tenorum sem væru að syngja við óperuna og HELST að þemað væri Háa C. Ekki fékk ég svar við þessari áskorun,en hann notaði þessa ágætu hugmynd um tenoratónleika og skömmu síðar sungu fjórir tenorar á tónleikum í Gamla Bíói. Það var kannski ekki fallega gert að skora á tenora að syngja á tónleikum með mér,þar sem þeir yrðu að syngja eitthvað sem færi upp á Háa C. Það er í raun bara Garðar Thor sem ég hef heyrt syngja Háa C (og jafnvel hærra) síðari ár. Flottasta Céið heyrði ég fyrir mörgum árum hjá Ólafi Árna Bjarnasyni,hann var þekktur fyrir góða hæð.                                 Þegar ekki tókst að fá að syngja hjá óperunni á tónleikum með öðrum tenorum "samkeppnis-tónleikum" þá ákvað ég að syngja bara einsöngstónleika. Í nóvember 2008 hélt ég styrktartónleika fyrir Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur,"15 Háa Céa tónleika" og gaf allan aðgangseyrinn.Árið eftir fór ég um landið,söng 7 tónleika þar sem gjarnan var skroppið upp á Háa C og gaf 1/3 aðgangseyris til góðgerðarmála. ÞVÍ MIÐUR voru fjölmiðlar ansi lokaðir fyrir umfjöllun um þessa tónleika,þrátt fyrir glæsilega efnisskrá og að góð málefni fengju hlut.Mega þeir hafa skömm fyrir.Það er því miður þannig að SAMA fólkið er aftur og aftur í fréttunum en aðrir komast ekki að.                                     Þetta er að verða dálítið langt blogg,en ég gæti nú átt eftir að bæta við seinna. Sumir segja við mig að ég ætti að fá mér betri græjur til að taka upp það sem ég er að setja á www.youtube.com  þar sem ég er með slatta af tónlist.Ég segi að það geri ég þegar ég á meiri pening og kreppunni linnir.Ég er samt alltaf að fá eitt og eitt "job" út á það. Ég kann auðvitað slatta af íslenskum lögum sem ég get sungið á skemmtunum t.d. Rósin,Draumalandið,Hamraborgin,Draumur hjarðsveinsins,Þú eina hjartans yndið mitt,Í fjarlægð o.f.l.   Samt syng ég oftast La donna e mobile,O sole mio,Be my love,Torna a Surriento og Nessun dorma.                                                                                          Einhver spurði mig í sambandi við þetta hverjir kæmu til greina ef Jóhann bakkaði út og hætti við að syngja Hertogann.Ég sagði auðvitað að ég kæmi til greina þar sem ég kann hlutverkið,hef kraft og hæð fyrir það og Garðar Thor og Gissur Páll væru með talsvert minni rödd heldur en ég,þó að þeir væri meiri karakterar sem lýrískir eða leggero tenorar heldur en Jóhann.Ef ég á að segja mína meiningu um þá þrjá,Jóhann Friðgeir,Garðar Thor og Gissur Pál þá er það eitthvað á þá leið að Jóhann er með stærstu og hljómmestu röddina þótt hann vanti meiri hæð.Garðar Thor hefur hæð,er svolítið klemmdur á köflum og röddin varla nógu stór og karlmannleg fyrir Hertogan, hann er reyndar mesta "krúttið" á sviði.Gissur Páll er með tæknilega bestu röddina,hún er ekki stór en maður er ekki að heyra galla í söngnum sem maður heyrir hjá hinum,þegar maður hefur hlustað svo mikið sem ég.Hef reyndar ekki heyrt hann syngja hærra en upp á Bb,svo ég veit ekki hvort hann getur sungið La donna e mobile af glæsibrag,eða hvort hann tekur Háa Desið í dúettinum.Hef heyrt hann syngja Ingemisco virkilega fallega,þó ég sé  örugglega að syngja talsvert stærri Bb þar en hann.  Mér finnst auðvitað að best sé að heyra alla í sama sal,helst stórum vegna komandi flutnings óperunnar í nýtt og mun stærra húsnæði.Vonandi verða þar fluttar óperur eins og Il trovatore og Un ballo,(sem ég kann báðar) og kannski Turandot.                                                                               Við þá sem eru óánægðir með það að ég sé að gera þessi læti,skora á Jóhann o.s.f.v. þá segi ég:   Fólk heyrir ekki hvað ég er orðinn góður nema "læv".Upptökurnar eru ekki að sýna mitt besta,ég er miklu betri í sal. Stórfyrirtæki sem vilja spennandi atriði með smá "samkeppni" á árshátíðarnar sínar geta pantað okkur Jóhann Friðgeir og beðið um lög eins og O sole mio (sem hann syngur í F dúr en ég í As dúr,einum og hálfurm tón hærra.)La donna e mobile,Nessun dorma sem hann syngur lækkað en ég ekki. Auðvitað má einnig panta einhvern hinna til samanburðar.                                              Íslenska Óperan á ekki að vera klíka heldur opin fyrir nýjum röddum sem vilja keppa við þær sem fyrir eru. EKKI laumupúkast með hvað á að gera á næstunni.Fólk vill vita hvað á að flytja helst meira en ár fram í tíman.    LISTAMENN eins og söngvarar verða alltaf að vera að SANNA SIG.  Það mun ekki auka virðingu annara fyrir manni að svara ekki gagnrýni,svara ekki bréfum og netpósti og þykjast vera yfir það hafinn að mæta áskorunum annara.  Fullt af fólki veit nú þegar um þessa TENOR-ÁSKORUN  og það kemur bara illa út fyrir alla sem hafa reynt að þegja og snúa upp á sig.   Þó nokkuð margir hafa heyrt mig syngja í gegnum árin bæði á tónleikum,á Fjörukránni,þar syng ég mest þjóðlega tónlist en reyni einnig að halda uppi "brekkustemmingu" fyrir hópa sem þannig eru stemmdir.Slatti af fólki hefur einnig séð mig á www.youtube.com (Hátt í 30 þúsund síðast þegar ég gáði.)      Þó að sumum finnist ég kannski vera klikkaður að ráðast svona á "kerfið" þá dást aðrir að mér fyrir hugrekkið og segjast vona að þetta muni verða til að betri tímar renni upp hjá Íslensku Óperunni og hún verði ekki umtöluð fyrir klíkuskap og leynimakk.  Ég vona allavega að einhverjir lesi þetta blogg,og auðvitað greinina í Mogganum þegar (ef) hún birtist.  Það er ekki ætlun mín að særa neinn með þessum skrifum,ég tel þau vel rökstudd og ef einhver hefur eitthvað að segja um að ég sé "ekki í sama klassa" og sumir aðrir söngvara þá segi ég bara. Syngjum saman,dæmum eftir frammistöðu á sama tónleikapalli,heiðarlega samkeppni en ekki klíku.           

                      Virðingarfyllst, Kári Friðriksson tónlistarmaður. Reyjavíkurvegi 36, 220 Hafnarfirði.      

                       Sími: 6910665   karifrid@hotmail.com      (Á youtube , karifrid.)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvað kostar að fá þig til að syngja eitt lag við jarðaför?

birgir Jóakimsson (IP-tala skráð) 6.8.2010 kl. 23:33

2 Smámynd: Eyþór Eðvarðsson í Vilnius

Þetta blogg þitt virðist einvörðungu snúast um þig og Jóhann Friðgeir. Heldur þú að það sé tilviljun ein að Jóhann Friðgeir skuli jafn vinsæll og hann er? Röddin ein mun aldrei koma neinum manni áfram. Þar þarf margt fleira til eins og þú veist. Jóhann Friðgeir nær til fólks.  hann hefur verið ötull við að koma sér á framfæri, fylginn sér og óhræddur við að leggja til hugmyndir að uppákomum.
Þú nefnir Tenórana þrjá sem ég setti saman fyrst árið 2000 og hafa lifað fram til þessa dags. Þar hafa ýmsir sungið með, en einn er sá sem hefur verið burðarásinn og verið með frá byrjun, það er Jóhann Friðgeir.

Fyrir mér er þetta einfalt. Stattu sjálfur fyrir tenóratónleikum. Bjóddu öðrum tenórum að taka þátt. Nóg er um góðan málstað. Ég minnist tenóratónleika í Kaplakrika fyrir um 15 árum þar sem fram kom fjöldi tenóra.
Svona viðburður ætti að geta vel staðið undir sér.
Og; þú færð tækifæri til að sanna að þú ert besti tenór á Íslandi!

Söngkveðja

Eyþór Eðvarðsson, tenór,  formaður Nordisk Sangerforbund og fyrrv. formaður Fóstbræðra

Eyþór Eðvarðsson í Vilnius, 7.8.2010 kl. 10:25

3 Smámynd: Kári Friðriksson

Sælir Birgir og Eyþór.

Það mun vera taxti yfir einsöng,en svo eru þeir sem eru þekktir ,Diddú,Egill Ólafs ,Jóhann og Garðar sennilega með sína eigin taxta..

Ég startaði nú reyndar hugmyndinni um tónleikana í Kaplakrika "Tenorar fyrir tónlistarhús". Þá var ég alls ekki eins góður og í dag.  Það var mjög skemmtilegt,en við fengum bara að syngja eitt lag.(Aríu) Ég var líka primus motor í "Þrír tenorar á listasumri" 2007 þar sem bræðurnir Gunnar og Guðbjörn Guðbjörnssynir sungu með mér,ég var ekkert að ögra þeim með háum tónum. Ég söng reyndar 10 Háa C, en var ekki með neina stæla. Reyndi að selja okkur ,eða aðra þrjá t.d. á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum.Þeir voru heitir þangað til einn mundi að það hafði verið kastað flösku í Ólaf Kjartan.Treystu ekki á vörslu gegn "skrílnum" þegar hann væri orðin ölvaður.                                        Ég hef reyndar ekki verið að halda því fram að ég sé BESTI tenor landsins,heldur vonandi "Besti háa Cés tenor landsins" eins og  einn ágætur maður sem hlustaði á mig hélt fram.                                                                                     Ég HÉLT REYNDAR góðgerðartónleika fyrir Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur árið 2008 þar sem ég skoraði á aðra tenora að mæta og syngja fyrir gott málefni.Helst aríu með margnefndu HÁA Céi. Þetta fékk LITLA umfjöllun í fjölmiðlum.      Þetta kemur reyndar fram í blogginu.        Það er bara þannig að ef maður er ekki dálítið frægur,vill enginn tala við mann,sem verður til þess að tónleikar sem maður er að halda verða illa sóttir.   Það tekur tíma að byggja upp "vörumerki" en stundum brennur það við með söngvara að það er haldið áfram að "selja vörumerkið" löngu eftir síðasta söludag. Maður eins og ég,með áhuga á tónlist,er stundum að skoða hverjir eru að syngja á www.operabase.com  . Sumir eru ógurlega lengi að þrjóskast við...   Tek það fram að ég vildi ekki sjá að fara og hlusta á Carreras eða Domingo,til að skemma ekki minninguna með því að sjá þá farna að slakna...  ÉG ER (vonandi) að fara að gefa út einsöngsdisk.Gengur hægt,því að svona óþekkt vörumerki fær hvergi styrki til neins,sótti um hjá 120 stórfyrirtækju í góðærinu 2006 en fékk ekki krónu.Tók samt upp og er smátt og smátt að ná þessu,ef Guð (Mammon) lofar.                  Munur að vera "gott vörumerki" eins og Garðar Thor,sem fék c.a. milljón dollara í styrk,og gat ráðið Einar Bárðar til að koma sér áfram.

Sá loks í dag á mbl.is að óperan tilkynnti að Rigoletto verði frumsýndur 9.okt.    Ég fæ auðvitað ekki að syngja Hertogann,nema helst ef Jóhann mundi missa röddina við álagið.(Sem er dálítil hætta á.) Ég er samt ekki að óska þess en segi bara eins og Njáll. Ekki veldur sá er varar. (Njáll?)                                             Segi nú við þig Eyþór,af því að ég stjórnaði Karlakór Slökkviliðsins í 7 ár og finnst karlakór vera glæsilegt "hljóðfæri" að mig langar til að syngja einsöng með alvöru karlakór sem er að flytja "alvöru" tónlist. T.d. Di quella pira úr Il trovatore,(í C) eða Possente amor mi chiama úr Rigoletto.Síðasta partinn úr Luciu di Lammermoore eða aríur úr Ernani.NESSUN DORMA,smá kórpartur þar....

       Hafið það sem best,sjáumst í óperunni í haust.Kári Friðriksson.

Kári Friðriksson, 9.8.2010 kl. 23:31

4 identicon

Fékk hugmynd frá kunningja í veitingarekstri.Vera með "Tenoráskorun" á veitingastað sem mundi bjóða upp á tilboð á mat gegn sönnun á miða á Rigoletto í óperunni.Þar mundi ég syngja aríurnar úr Rigoletto,og kannski smá extra,til dæmis O sole mio með Háa Céi.Svo fer fólk í Íslensku Óperuna til að sjá Rigoletto og hlusta á einn frægasta (og besta) tenor íslands syngja Hertogann.Hann,sem þorði ekki að syngja (og keppa um hlutverkið) á tónleikum með mér. Það er alveg hægt að gagnrýna mig og mína rödd á ýmsan hátt,en sumum finnst samt að það beri ekki vott um sjálfstraust hjá Jóhanni Friðgeir eða þá TRAUST Á HONUM hjá Íslensku Óperunni að svara ekki áskorun um samkeppni um hlutverk. Ég frétti að Jóhann væri svolítið "stressaður" þessa dagana og hugsa að það sé dálítið álag fyrir hann að hafa þessa áskorun yfirvofandi,(sem hann hefur ekki þorað að mæta,þrátt fyrir að þarna geti hann bæði grætt PENINGA, þar sem svona atburður hlyti að fá aðsókn,og sannað að hann sé betri tenor fyrir hlutverkið en ég , sem hann er örugglega ekki sem "raddtýpa".) Kannski eru aðrir söngvara að stríða honum eitthvað fyrir að þora ekki að syngja þessar aríur á tónleikum með mér.(Þótt ég sé þekktur fyrir góða háa tóna.)Vonandi kallar enginn ögrandi:Gagg ,gagg ,gagg ,gagg, þegar hann gengur fram á sviðið í Gamla Bíói til að syngja þetta háa og glæsilega tenorhlutverk sem ALLIR kannast við.Vonandi getur hann haldið háu tónunum í þessum stórfrægu aríum lengur en hálfa sekúndu eins og Garðar Cortes (eldri) gerði því miður ekki oft síðast þegar Rigoletto var sýndur hér á landi.(Fyrirgefðu Garðar).Hann þá orðinn of þungur og "hetjuþroskaður" (mín orða uppfynding) og búinn að syngja Radames og Manrico áður. Garðar fór þó beint upp á tónana og hékk ekki neðaní eins og Jóhann gerði því miður í síðustu sýningum.(Sjá Celeste Aida á youtube.) Garðar enda mjög músíkalskur maður og áttaði sig sjálfur á því að hann væri bara orðinn of þungur fyrir hlutverkið og fékk aðra tenora erlendis frá til að syngja.(Fæstir voru eins flottir og hann,en höfðu hæðina.)Kannski væri best að REKA Stefán Baldursson óperustjóra (sem hefur hvort sem er enga menntun sem söngvari,eða í tónlist) og láta Garðar taka aftur við.Það voru valdar vinsælar óperur oftast í tíð hans sem óperustjóra. Hann er líka toppmaður.Nefni sem dæmi að hann lánaði mér einu sinni að FYRRA bragði 15000 kr. fyrir kórstjóranámskeiði,ég sagðist vera of blankur en hann sagði: Borgaðu bara í haust,þú hefur gott af fara á námskeiðið. Best að ég taki líka fram að ég hætti á miðju ári í Söngskólanum hjá honum.Ekki af því að mér líkaði ekki við hann,HELDUR af því að NÁMSLÁNIN LÆKKUÐU um 20 %  og ég var í stórum vandræðum,enda EKKI af "góðu fólki". Merkileg staðreynd um mína sögu er að Guðrún Á Símonar stórfræg söngkona sem kenndi fyrri konu minni sagði við hana. "Kári verður ALDREI söngvari.Hann hefur að vísu mjög góða rödd,en hann er samt sveitastrákur og kann ekkert að sleikja fína fólkið upp og fá það til að koma sér áfram.Pabbi hans er í þokkabót fyllibytta og Kommúnisti." Það er ekki hægt að segja að hún hafi haft rangt fyrir sér.Flestir viðurkenna að ég sé nú með ágæta rödd,en aldrei hef ég samt "komist áfram". Er samt að fara að gefa út disc bráðlega með aríum og canzonum.  Þegar ég loks stend upp og SKORA allt kerfið á hólm,orðinn öruggur með sjálfan mig sem einn albesta og kröftugasta tenor landsins þá virkar "þöggunarkerfi valdhafa" vel. Þrátt fyrir endurteknar bréfasendingar á netinu,viðtal á Bylgjunni og grein í Morgunblaðinu,PLÚS BLOGG þá hefur EKKI heyrst múkk frá neinum tengdum Íslensku óperunni.Þetta fyrirtæki er samt styrkt af almannafé og ætti að fara eftir Stjórnsýslulögum um auglýsingar og ráðningar á listamönnum.9. ágúst kom LOKS frétt frá óperunni um að það ætti að FRUMSÝNA  Rigoletto 9. október.

STUTTUR TÍMI fyrir þá fjölmörgu íslensku söngvara sem eru ekki "vel tengdir eða ættaðir" en hefðu gjarnan vilja undirbúa sig og syngja fyrir og reyna að KEPPA um hlutverk í Íslensku óperunni.  EF óperustjórinn er OF LATUR eða ÁHUGALAUS til að NENNA að hlusta á fullt af "misefnilegu fólki" reyna að sanna sig,samt á launum fyrir að vera "Óperustjóri" þá ætti hann bara að fara STRAX á ellilaun.Ef Júlíus Vífill og Diddú, sem ættu að vita að "næstum Wagner tenor" syngur EKKI hertogann með glæsibrag , vilja ekki hafa opið og "gegnsætt" ferli við ráðningar í hlutverk þá ættu þau að hætta sem stjórnarmenn í óperunni.                              Hugsanlega mun ég bjóða nokkrum veitingahúsum upp á "Rigoletto prógramm" í kring um sýningar,EÐA jafnvel býð tveimur ágætum tenorum að syngja með mér á TENOR ÁSKORUN tónleikum þar sem ég og Gissur Páll Og Garðar Thor,syngjum þrjár aríur úr Rigoletto hver en svo þrjú lög eða aríur að eigin vali."Þrír tenorar tónleikar" án Jóhanns Friðgeirs,þannig að þá þarf EKKI AÐ LÆKKA t.d. Nessun dorma eins og hefur ALLTAF verið gert þegar Jóhann er með. Þeir tveir eru báðir meiri "raddtýpur en Jóhann í hertogann,hann er hetjulegur en með "slappa hæð".

ÉG VEIT að bæði Garðar og Gissur geta sungið Nessun dorma í RÉTTRI HÆÐ.     Það eru spennandi tímar framundan,Viva la musica! (Ég held,og vona að þeir mundu ÞORA að sygja á tónleikum með mér.)  Kári Friðriksson tenorsöngvari.

Fyrir störf við söng: 6910665 karifrid@hotmail.com

Kári Friðriksson. (IP-tala skráð) 29.8.2010 kl. 00:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Kári Friðriksson

Höfundur

Kári Friðriksson
Kári Friðriksson
Tónlistarmaður,tenorsöngvari,trúbadúr,kórstjóri og tónmenntakennari.Yrkir ljóð,semur lög og stundar kraftlyftingar til að slaka á.Giftur og á þrjú börn.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband